Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1902, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.06.1902, Blaðsíða 7
55 kraftaverk — með öðrum oröum, að hann hlaut að vera upp risinn. Líkaminn var horfinn úr umbúðunum, en umbúðirnar lágu eftir óhrœrðar. Eg skal nú aftr minna á orð Páls postula, sem eg áðan tilfoerði í upphafi rœðu þessarar: ,,En nú er Kristr upp ris- inn frá dauðum, frumgróði allra þeirra, sem dánir eru. “ Hvernig víkr því við, að hann með upprisunni er orðinn frum- gróði hinna dánu ? Til voru þó uppvakningarkraftaverk áðr en hann reis upp. Þegar á gamla testamentis tíðinni er sagt frá slíkum undrum, í sögu þeirra Elíasar og Elísa. En enn þá minnisstœðari eru víst öllum þau þrjú uppvakningarkrafta- verk af völdum Jesú, sem frá er skýrt í guðspjallasögunum. Hann uppvakti son ekkjunnar í Naín, dóttur Jaírusar og Lazarus—hinn síðastnefnda eftir að hann hafði legið fjóra daga í gröfinni. Og samt er Jesús upp risinn af postulanum kallaðr frumgróðinn, eins og hafi hann verið fyrstr allra, sem birtist hér lifandi eftir dauðann. Hví er hann þá kallaðr frumgróði? Hann reis upp af eigin guðdómsmætti. En hinir allir voru upp vaktir og áttu þar í engan þátt sjálfir. Þetta er hátíðlega satt, en það er ekki fullkomið svar upp á spurning- una, hvers vegna hann sé kallaðr frumgróði hinna dánu. En hið fullkomna svar er þetta: Hann er sá fyrsti, sem rís upp í ummynduöum, óforgengilegum, dýrðlegum líkama,—líkama, sem aldrei til eilífðar deyr, himneskum líkama, sem ekki getr dáið. En hinir allir, sem vaktir höfðu verið upp aftr til þessa lífs, báru framvegis sama forgengilega, jarðneska líkamann, sem þeir höfðu áðr borið, og hlutu svo að deyja líkamlega aftr eins og allir aðrir menn, þá er tíminn var kominn. Þeg- ar Lazarus var upp vakinn af Jesú, þá reis hann upp í lík- blæjunum, grafar-umbúðunum. ,,Leysið hann og látið hann fara“—sagði Jesús. Það þurfti enginn að leysa umbúðirnar af líkama Jesú, þá er hann reis upp. Ekki heldr hann sjálfr. Þær voru alls ekki leystar. Vegna ummyndunarinnar frá jarðneskum líkama til himnesks líkama þurfti þess ekki við, eins og þess ekki heldr þurfti við, að steininum væri velt frá grafarmunnanum til þess að hann gæti komizt út. Reyndar er frá því skýrt, að engill hafi komdð og velt steininum frá, en

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.