Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1902, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.06.1902, Blaðsíða 15
63 ganga í munnmælum. Síðan hafi sagan veriö skrásett og fœrö í líkingarmálsbúning nálægt árinu 500 f. Kr. Eins á aö vera ástatt meö ýmsa innskotskafla, sem sagt er aö sé í spá- mannabókunum hinum, frumrit Mósesbókanna o.s. frv.---------- Þetta læt eg nú nœgja til þess að sýna, að niðrstaða ,,kritíkarinnar“ er enn sem komið er engan veginn óyggjandi eða fastákveðin. Engin ástœða því .enn til að hœlast um. Mörgu, sem nú er haldið fram, getr áðr en langt líðr orðið hafnað. Það verðr því að leyfa mönnum að berjast á móti mörgum svona löguðum nýmælum og hinni óheilsusamlegu, roggnu ,,kritík“, sem engin mótmæli þolir. Gætnir vísinda- menn, sem að eins hafa það markmið að leita sannleikans, verða að fá að vinna verk sitt í friði. Þeir munu leiðrétta skekkjurnar hjá sér sjálfir. En vér, sem ekki erum því vaxn- ir að takast á hendr hinar víðtœku málfrœðilegu og sögulegu rannsóknir, verðum að hafa þolinmœði til að bíða og varast að kveða upp nokkra dóma í máli því, sem vér berum ekki nœgilegt skyn á. — -— En það að bíða geta menn ekki eða vilja ekki. Óðar en vísindamennirnir hafa leitt þá eða þá ályktan út af rannsókn- um sínum eða komizt að einhverri svo kallaðri niðrstöðu henda margir, sem hafa allt sitt vit frá öðrum á aðra og þriðju hönd, þær kenningar á lofti og halda þeim fram sem óyggjanda sannleik. Með gumi miklu er þeim þeytt út í allar áttir. A torgum úti eru þær boðaðar, og í lífinu eru þær reyndar. Það var einkum til að vara menn við slíku háttalagi að eg ritaði línur þessar. Hvað sannleikr er á almenningr heimt- ing á að fá að vita. Að eins um stundarsakir verðr hann dul- inn fyrir fólki, þótt talizt geti algjörlega ófullveðja í andlegum efnum. En með dálítilli gætni verða menn að fara með það, sem þeir vita ekki hvort er satt eða ósatt, kenningar, sem enn þarf að prófa áftr og aftr. Þótt náungar þessir geti sjálfir gengið í gegn um ,,kritíkina“ án þess að trú þeirra bíði af því neitt tjón, og þótt þeir meira að segja eins og þeir láta sér um munn fara styrkist við það í trúnni, þá ætti þeir þó að hugsa um hina mörgu, sem alls ekki eru því máli vaxnir, mis-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.