Freyja - 01.02.1903, Qupperneq 30

Freyja - 01.02.1903, Qupperneq 30
102 r „Eg álít það sé röttara af henni að lifa og deyja ógift en að giftast manni, sem hún elskar ekki, hversu hátt sem hann stæði í mannfélaginm og ög fæ ekki betur séð en þín eigin lífsreynzla ætti að kenna þér það“. „Hvað meinarðu?" sagði Gi’anger og roðnaði við. „Eg meina að þú hafir lítillækkað þig með giftingu þinni, að kon- an þín sé þér ekki samboðin, ekki hæf til að vera fylginautur þinn og; að hún þoli engan samanburð við Helenu“. „Varaðu þig, Willi, mundu að það er konan mín, sem þú ert nú að tala um“, „Lagalega er hún það að vísu, en siðferðisiega ekki. í sambúð ykkar er ekki snefill af ást, ekki einusinni velvild, og henni þykir gam- an að kvelja þig þegar enginn sér til, þó hún setji upp falskt meðlíðun- ar andlit þcgar aðrir eru viðstaddir til að blinda heiminn, og hún er dramblát af því að þú, Edward Granger, ert maðurinn hennar. Jafnvel Helen er farsælli en þú, Ed“. Það voru margskonar tilfinningar sem hreyfðu sér í brjósti Grang- ers nieðan á þessari ræðu stóð. Sjálfstilfinning hans þoldi ekki að vin- ur hans sæi svo rétt og færi svo óvægilega með heimilislíf hans og þó gat hann ekki borið á móti neinu sem hann sagði. Þess vegna sagði hann eins háðslega og napurt og hann gat: „Það lítur út fyrir að þú hafir verið i heimspekisskóla að læra mannúð. Væri ekki rétt fyrir ykkur Helenu að stofnsetja nýja skóla til að kenna í, ykkar einkenni- legu siðafræði?“ „Þér er ekki til neins að reiðast sannleikanum, Ed. Guð veit að ég vildi að þetta væri á annan veg, því að ég ann þör alls hins bezta. En ég hefi kynnt mér þetta mál í þrjú ár, og þar til og með talað við kcnu, sem einusinni var hjá föður mínum. A unga aldri stóð hún í Helenar sporum, en til að hlífa sér við opinbcrri smán giftist hún manni, sem lengi hafði verið að draga sig eftir henni, en sem stóð siðferðislega langt fyrir neðan hana. Um þetta segir liún nú: ,,Sá stærsti glæpur sem ég hefi framið, var að giftast þessum manni. Fyrst átti ég eitt barn með manni sem ég elskaði af öllu hjarta. Síðan hefi ég orðið þriggja barna móðir fyrir mann, sem ég elska ekki. I því liggur glæpur minn, því það er glæpur gagnvart börnunum, föður barnanna og sjálfri mér. Hvílíkur líka voða glæpur, þar sem ekki einungis allir hlutaðeigendur líða við á alla vegu, heldur og mannkynið í heild sinni af því, að efnið í þessum börnuin—þessum tilvonandi starfsmönnum lieimsins er sýrt, skemmt og eitrað í byrjun tilveru þeirra, með ástleysi foreldranna. En nú heiðrar heimurinn mig af því ég er gift kona—heimurinn, sem þá fyrirleit mig fyrir að vera ógift móðir, og þá var ég þó hrein sem lilja hjá því sem nú er ég“. „Segjum að heimurinn skildi þessa hluti á sama hátt og þú gjörir,

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.