Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1903, Side 5

Sameiningin - 01.06.1903, Side 5
53 líka vopn til þess að stjórna hjörðinni með. Eg vildi, að þér gætuð séð, hvernig sauðirnir þyrpast utan um smalann og leggja sig fast upp að honum; þá myndi yðr vel skiljast um- mælið : (þau) ‘hugga mig’. Kall hirðisins og niðrinn af fóta- gangi sauðanna, er þeir skunda til hans, — það eru hljóð, sem vel eru valin úr þessum hávaðasama heimi til þess að jar- teikna huggun þá, er guð veitir sálum þeim, sem sinna rödd hans. Og þessar raddir hefir mátt heyra í mínu landi í síð- ustu tíð alveg eins og forðum, þá er hirðissálmrinn var í letr fœrðr. ,,Þegar nú hér er komið í sálminum, þá hverfið þér burt frá líkingarmálinu um hirðisstarfið og setjið inn í sálminn hugmyndina um veizlu ; en með því móti missið þér af hinum fagra stíganda í hugsaninni um umhyggju hirðisins fyrir hjörð- inni. ‘Þú tilreiðir mér matborð fyrir minna óvina augsýn’. Það er fráleitt í mesta máta að missa þarna sjónar á því atriði hirðisstarfsins, sem mest hyggindi þurfa til og mesta karl- mennsku,og ímynda sér, að hér sé allt í einu í sálminum farið að hugsa um veitingar innanhúss. Ekkert œðra hlutverk liggr fyrir hjarðmanni í mínu landi en það að leggja aftr og aftr á stað að heiman til þess að kynna sér það eða það svæði grandgæfilega, rannsaka haglendið og grastegundirnar, sem þar vaxa, og á þann hátt að leita upp þá staði, þar sem sauð- irnir hans geta haft góða beit og verið óhultir. í slíkum rannsóknarferðum reynir oft hvað mest á vitrleik hans og vaskleik. Innan um grasið eru margar eitrjurtir, og þær verðr smalinn að finna og ná þeim burt. Frændi minn nokkur missti einu sinni þrjú hundruð sauða sökum gáleysis í þessu sambandi. ,,Líka eru þar jarðsmugur, þar sem höggormar hafast við; og höggormarnir bíta nasir sauðanna, ef þeir eru ekki flœmdir burt. Hjarðmaðrinn verðr í því skyni að brenna svínsfeiti við smugu-opin. Allt í kringum beitilandið, sem hirðirinn verðr að hreinsa á þennan hátt, áðr en hann megi hleypa hjörðinni þangað, eru sjakalar, úlfar, hýenur í hellum og gjótum fjallshlíðanna, og jafnvel tígrar. Og um fram allt þarf hirðirinn ú öllum vitsmunum smum og hugrekki sínu að

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.