Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1903, Blaðsíða 8

Sameiningin - 01.06.1903, Blaðsíða 8
56 En fjöldi vor er líka veikleiki vor. Vér eruin frá svo mörgum þjóöum og löndum komnir; vér höfum myndazt á mismunanda hátt fyrir mismunandi áhrif hnattstöðu, þjóölífs og uppeldis. Vér lúterskir menn höfuin fjölgað í þessu landi frá því að vér árið 1800 vorum 23,000 þar til vér nú árið 1903 erum 1,750,000. (Hér eru að eins taldir fermdir meðlimir lúterskra safnaða.) En þessi mikla samsteypa lúterskra manna talar á ellefu tungum, eða meir. Á næstu fimmtíu árum mun lúterska kirkjan læra að tala ensku, ekki að eins að nokkru leyti eins og nú er, heldr al- mennt og algjörlega. Þar fyrir segi eg ekki, að ekkert annað mál verði talað en enskan í lútersku kirkjunni í Vestrheimi; heldr að eins þetta : Innan fiinmtíu ára verðr að líkindum enskan töluð undantekningarlaust á öllum kirkjuþingum sem aðal-mál, og enskan verðr notuð við guðsþjónustur í níutíu af hverjum hundrað kirkjum vorum. Hvernig kemst þessi breyting á? Hún er nú þegar að komast á. Eg tek dœmi. Ágústana-sýnódan sœnska er meir en þriðjungr alls Gen- eral Councils. Vér erutn upprunalega og höfum til fárra ára verið sœnskir, en vér höfum komið til þessa lands til að ílengjast hér. Vér hugsum oss ekki að endrreisa Svíþjóð hér á amerískri jörð, heldr allt annað. Hvað hugsum vér oss að verða? Vér ætlum að verða verulegr og samgróinn partr hins ameríska þjóðlífs, og vera sem partr hinnar miklu og dýrö- legu lútersku kirkju í Ameríku, sem smámsaman myndast hér úr mörgum og mismunandi efnum. Oss er annt um, að bróðurlegt samband sé milli vor og hinnar lútersku kirkju í Svíþjóð, og á yfirstandandi tíð er það samband bróðurlegra en nokkru sinni áðr. En það segi eg með áherzlu, að vér munum ekki líða nokkrum tilfinningum, nokkurri vináttu, nokkrum sögulegum endrminningum að aftra oss frá því, að uppbyggja hér sannarlega ameríska lúterska kirkju,— — Það mál, er snertir tungurnar, mun bráðlega sjá um sig

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.