Sameiningin - 01.06.1903, Page 13
Og borgarastaöa í frjálsu og kristnu ríki hefir í för meö
sér skyldur og ábyrgö, sem enginn einstaklingr eöa flokkr ein-
staklinga er undanþeginn. Því œöri sem köllun vor í lífinu
er, því meiri er ábyrgöin, og því fyrr sem kirkja vor yfir höfuö
aö tala viörkennir þennan sannleik, því betra verör þaö fyrir
oss sjálfa og því meiri áhrifum og valdi náum vér aö beita hér
í voru kæra landi.
Hin lúterska guöfrœöi vor er á yfirstandandi tíö í mjög
ánœgjulegu ásigkomulagi. Guöfrœöingar vorir og kennarar
eru læröir menn, en líka auömjúkir og guöhræddir ; þeir hafa
í sér starfsfjör, skarpskyggni og karlmennsku Lúters sjálfs.
Hin þóttafulla, nærsýna, dauöraga tegund leiötoga þekkist
ekki í prestaskólum vorum. Því eldri sem vér verðum, j>ví
dýpri verör fyrirlitning vor á hinum uppblásnu stórbokkum,
sem ranglega eru nefndir rannsóknarmenn (critics). Látum
rannsóknarmennina margfaldast aö tölu; látum þá verja tíma
sínum til rannsókna; en krefjumst þess, að þeir hafi heil-
brigða skynsemi og hinn sanna hógværðar-anda, sem ávallt
hefir einkennt hina beztu og göfugustu lærdómsmenn.
Hver framtíö bíör vor ?
Guö einn veit það.
Vér erum aö veröa betr menntaöir en vér höfurn veriö.
Hógværö vor verðr ef til vill ekki samferða bœttum kjörum
vorum og vaxandi velmegun. Ef til vill verða einhverjir
þeirra, sem á eftir koma, ekki andlega sinnaöir og guðhræddir
í rannsóknum sínum. Guðlaus guðfrœöingr, eöa biblíufrœö-
ingr án guös ótta, finnst mér vera líkr villumanni frá Suðr-
hafseyjum dœmanda um sönglist. Hinar næmu eðlisávísanir,
hin sterka sjálfsstjórn, hin glögga sjón á því, sem andlegt er
og yfirnáttúrlegt, getr að eins veitzt þeim lærdómsmanni,
sem andlegt heimili sitt hefir byggt á Golgata og hefir fyrir
yfirkennara sinn hinn heilaga anda föðursins og guðmannsins,
frelsara vors.
Ef lúterska kirkjan í Vestrheimi verör staöföst í trú sinni
á hiö opinberaða orð guös og heldr fast viö Ágsborgar-
trúarjátninguna sem áreiðanlega og fullnœgjandi útskýring á
kenningum nýja testamentisins, —ef kirkja vor viðrkennir