Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1904, Side 15

Sameiningin - 01.12.1904, Side 15
i59 geía langt um meira en það; enginn ætti minna að gefa—- minna en tíunda part af þvf, er réttilega getr talizt tekjur lians, hvort sem þær eru litlar eða miklar. Til þess menn fyllilega fái kannastvið tíundarskyldu sína, þegar tekjur þeirra eru litlar, en hinar persónuíegu þariir og heimilis-nauðsynjarnar eru miklar, ríör þeim mjög á þvíj aö kannast við þann yfirnáttúrlega þátt, sem forsjón guðs á í því að bera umhyggju fyrir börnum sínum. Hafi kristinn maör nógu miklar tekjur til þess vandræöalaust að fullnœgja öllum þörfum sínum, þá er fyiir hann ekki minnsta afsökun frá því að greiða drottni tíunda part þeirra, og gjöri hann það ekki, hefir hann með öllu fyrirgjört sóma sínum. En þegar rnaðr finnr örbirgð kreppa að sér dag eftir dagallasína æfi, þá skift- ir það miklu máli að hann haíi það hugfast, að níu cent end- ast betr en tíu cent myndi endast, og níu dollarar betr en myndi tíu dollarar, til þess að bœta úr þörfum sjálfs sín og sinna. eftir að hann heíir borgað drottni centið eina og dollar- inn eina, honum, sem krefst þessa sem eignar sinnar. Sá maðr, sem trúna hefir, efast ekki um þetta. Sérhvert barn guðs, sem náð hefir sér niðri í þessum sannleika, hefirreynt, að þaðan kom honum óbrigðult athvarf. Þeir einir hafa á þessu ótrú, sem aldrei hafa borið nógu mikið traust til guðs til þess, þótt ekki væri meira, að nota sér það til reynslu. Það er eins um einstaklinga í þessu efni eins og um söfnuði. Hvorki kröggur þeirra né efasemdir stafa nokkurn tíma af því að þeir hafi borgað skuldir sínar, eða af því að þeir hafi of ör- látlega gefiö drottni af efnum sínum. Svertingjaprestr einn gamall hafði gjört sér ljósan sannleikann í þessu máli, þegar hann sagði: ,,Aldrei vissi eg til þess, að nein kirkja gjörði út af við sig á því að gefa drottni of mikið. Væri slík kirkja til og eg fengi að vita um það, þá vil eg segja ykkr, hvað eg skyldi gjöra: Eg skyldi nú undir eins í kvöld fara til þeirrar kirkju; og eg skyldi klifra upp á hiö mosavaxna þak hennar og setjast tvívega upp á mœniásinn og hrópa svo hástöfum: ,Sælir eru hinir dauðu, þeir sem í drottni eru dánir‘. “ AS deyja af skylduroekni—að veröa hungrmorða út af tíundar- gjaldi til drottins—er góðr dauödagi. En það er síðr dauöa-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.