Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1906, Side 6

Sameiningin - 01.01.1906, Side 6
i66 — eins og þeir aö eins væri að sofna. Stundum koma sina- teygjur fyrir hjá deyjandi mönnum, en einnig þá er algjört meövitundarleysi ráðandi, og sársauka-tilfinning alls engin. Og þar sem þá dauðinn sjálfr ekki hefir neina líkamlega kvöl í för meö sér, hví skyldi þá þurfa aö hræöast hann, þegar um hann er hugsað frá andkgu sjónarmiði? Gætum að, hvaö hann gjörir kristnum manni. Dauðinn frelsar hann frá slysum, sjúkdómum og þjáning- um, sem vofðu yfir líkamslífi' hans alla æfi—margskonar þraut- um, sem hann oft varð út að taka, stundum meö mestu harm- kvælum og þeim afar langvinnum. Ðauðiun frelsar hann frá allri sorg. Enginn, sem kemst úr œsku, sleppr undan sorg. Og margar sorgir margfaldast meö líðandi árum og bera ofrliði jafnvel hinar hugrökkustu sálir. Allr þorri mannkynsins heyrir til hópi þeirra, sern „erviða og þunga eru hlaðnir". Dauðinn opnar kristnum manni hlið himnaríkis. Þótt vér ekki vitum neitt um einstök atriði lífsins á himnum, þá vituni vér. þó, að þár munum vér lifa í eilífri sælu; þar verðum vér í návist guðs sjálfs; þar sjáum vér og drottin vorn Jesúm Krist og þekkjum hann til fullnustu; þar verðum vér algjörlega und- ir áhrifum heilags anda; þar hittum vér hina helgu menn frá öllum öldum; þar sameinumst vér aftr ástvinum vorum, seni farsællega eru komnir yfir um á undan oss, og á sínum tíma koma þangað einnig hinir, sem vér höfum látið eftir liér á jörð- inni; þar mun hinn andlegi sjóndeildarhringr vor fœrast út langt langt fram yfir það, sem oss er nú auöið að skilja; þar verör leyst úr öllum ráðgátunum, sem heyra til hinni jarönesku tilventyfpg allt slíkt verör oss ljóst eins og bjartr dagr; þar fáum vér að vita, hvers vegna vandræði, vonbrigði og þrautir heyrðu til hlutskifti voru hér á jörðinni, og hvernig á þvi stóð, að slíkt var nauösynlegt til þess hinn innri maðr vor fengi þroskazt í rétta’ átt, og hvers vegna vísdómsráð guðlegrar for- sjónar var eins og það var, ekki að eins að því, er sjálfa oss snertir, heldr og mannkynið í heild sinni. Þar hverfr, með öör- um orðum, allt, sem illt er, en allt, sem er gott, verör eilíf eign ■vor.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.