Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1950, Side 8

Sameiningin - 01.04.1950, Side 8
38 Sameiningin Allir roðlarnir og flest slitrin eru skrifuð ferningsletri, sem svipar allmikið til hebresks leturs eins og það er nú. En nokkur slitur eru þó skráð eldra letri. Roðlarnir, sem þau eru úr, hljóta því að hafa verið ritaðir á 4. eða 3. öld f. Kr. Má sjá, að 3. Mós. hefir verið skráð á þeim tímum. Ritbrotin úr Gamla testamentinu eru úr 1., 3. og 5. Móse- bók, Dómarabókinni og Daníelsbók. (G. R. Driver í Oxford telur þó handritin miklu yngri, jafnvel frá 5. eða 6. öld e. Kr.). Gildi þessa fornleifafundar fyrir Gamla testamentis rannsóknirnar verða seint fullmetið. Og varðar þá allra mestu um það, að hafa fengið spádómsbók Jesaja á hebresku í heilu lagi í handriti frá 2. öld f. Kr. En elzta handrit af spámannaritunum áður, sem unnt var að árfæra nákvæm- lega, var frá 916 e. Kr., og hafa margar villur slæðst inn í texta þess. Elztu handrit af grískum þýðingum á Gamla testamentinu eru þó miklu eldri, eða frá 5. öld e. Kr., og hefir mátt leiðrétta með aðstoð þeirra ýmsar villur í he- breska textanum. Þegar á 1. öld e. Kr. tóku Gyðingar að samræma texta Gamla testamentisins og reyndu síðar að reisa rammar skorður til tryggingar því, að einn og sami texti gengi óbreyttur að erfðum öld eftir öld. Er hér nú fundinn eldri texti en erfðatextinn á ýmsum ritum Gamla testamentisins, og hljóta vísindamenn að taka hið mesta til- lit til þess á komandi tímum og leitast við að hafa það í hvívetna, er sannast reynist. Því miður hefir ekki verið í fyrstu gætt nægrar varúðar við þennan fornleifafund. En úr því verður reynt að bæta eftir föngum. Munu vísindamenn mörg næstu ár vinna úr því, sem fundizt hefir, og endurskoða á ný erfðatexta Gvð- inga. Má vænta þess, að yfir margt verði brugðið nýju ljósi Um Jesaja handritið forna má sérstaklega geta þess, að það mun fremur auka en rýra gildi erfðatextans. Nýjasta Biblíuþýðing vor á ritinu, sem gjörð var eftir honum, stend- ur því vísast traustum rótum. En allt verður að kanna á ný vandlega miðað við handrit þetta, og mun það leiða til fyllra og öruggara skilnings á einhverju allra dýrmætasta trúarriti og spekiriti heimsins fyrir daga Jesú Krists. Já, ef til vill fáum við að vita nákvæmlega, — orð fyrir orð — hvernig textinn hefir hljóðað, sem Jesú valdi sér í sam- kundu'núsinu í Nazaret, er honum var fengin bók Jesaja

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.