Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1950, Page 12

Sameiningin - 01.04.1950, Page 12
42 Sameiningin Spásagnir Spásagnir heilagrar ritningar ásamt mörgu öðru bera vott um heilagan uppruna hennar. Tökum til dæmis spá- dóm Esekiel spámanns um Týrusborg: Fyrir því segir Guð Drottinn á þessa leið. „Sjá, ég skal finna þig Týrus, ég skal leiða í móti þér margar þjóðir, eins og þegar hafið lætur öldur sínar að streyma. Þær skulu brjóta niður múra Týrusar og rífa niður turna hennar, og ég mun sjálfur sópa burt öllum jarðveg af henni og gjöra hana að berum kletti. Hún skál verða að þerri-reit úti í hafinu, því að ég hefi talað, segir Drottinn, og hún skal verða þjóðun- um að herfangi. Ég leiði Nebúkadnezar Babel-konung gegn Týrus úr norðri, með hestum, vögnum, riddurum og mann- söfnuði margra þjóða“. Esek. 26. kap. Spádómur þessi átti sér alllangan aldur áður en hann rættist, nálega um tvö hundruð ár. Þá gerði Nebúkadnezar herferð sína gegn Týrus og sat um hana í þrettán ár áður en hann fékk unnið hana. Meðan á umsátrinu stóð fluttu Týrusarbúar mikið af auðæfum sínum út á eyju, sem lág fyrir landi. Þeir hugðust standa betur að vígi að verjast á eyju þessari. Nebúkadnezar hélt burtu frá borginni eftir að hann hafði unnið hana; torg og hallir stóðu eftir mannlaus og þögul, og engar mannlegar athafnir áttu sér þar stað, og engir sungu þar gleðisöngva. En Týrus stóð enn með allmiklum blóma þar sem hún nú stóð, og engin hætta virtist vofa vfir henni. Hún var enn drotning Miðjarðarhafsins og rak verzl- un um nærliggjandi lönd og meðal allra þektra þjóða. Þann- ig entist vegur hennar um tvö hundruð og fjörutíu ár. Hver mundi dirfast að bera fram spásögn gegn Týrus um þá tíð. En nú hóf Alexander mikli leiðangur sinn um Litlu- Asíu og Austurlönd. Áður en hann færi lengra áleiðis aust- ur fýsti hann að halda liði sínu um suðurströndina og koma við í Týrusarborg og vinna hana. Þegar Týrusmenn heyrðu um ferðalag Alexanders, féll þeim allur ketill í eld, og gerðu í hasti sendiboða á fund

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.