Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1950, Síða 4

Sameiningin - 01.05.1950, Síða 4
50 Sameiningin Gjöfin æðri öllum skilningi Þeila heíi ég ialað við yður, meðan ég enn var hjá yður, en huggarinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, hann mun kenna yður ali, og minna yður á alt, sem ég hefi sagi yður. Frið læí ég efiir hjá yður, minn frið gef ég yður; ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjaria yðar skelfist ekki né hræðisi. — Jóh. 14:25.-27. Þessi orð eru brot úr skilnaðarræðu Jesú til lærisveina hans. Þau eru hjartfólgin og fögur orð, hugumkær læri- sveinum hans á öllum tímum. Þau eru töluð af meistaran- um til að undirbúa þá undir straumhvörf nýrrar reynslu, er þeir áttu í vændum, og viðskilnaður hans við þá myndi valdandi. Uggur og ótti hafði gagntekið hugi þeirra, sam- fara óljósum skilningi á því er í vændum var. En Jesú vill með orðum sínum lyfta hugum þeirra og láta þá öðlast skilning á því að reynsla sú er nú beið þeirra, myndi í víð- tækri merkingu verða þeim til blessunar, og myndi eiga sinn þátt í því, að veita þeim blessun og þroska er þeir sízt eftir væntu. Þess vegna er það að hann lýsir fyrir þeim hlutverki heilags anda þeim til þroska. „Hann mun kenna yður alt og minna yður á alt, er ég hefi sagt yður“. Huggarinn átti að halda áfram verki Krists þegar að hann væri farinn frá þeim. Orð hans og kenn- ingar áttu að fá á sig nýjan og þeim óþektan blæ fyr- ir það að Jesú var ekki lengur með þeim. Áhrifa- magn orða hans, átti fyrir túlkun andans — og sökum þess að hann væri frá þeim farinn að öðlast nýja og áður ó- þekta merkingu í hugum þeirra. Gróðrarmagn, máttur og merking orða hans átti að margfaldast sökum viðskilnað- arins. Söknuðurinn yfir því að hann væri frá þeim farinn, minningin um alt er hann hafði verið þeim, átti undir áhrif- um heilags anda að færa þeim heim sanninn um alt er hann hafði verið þeim í dýpstu og víðtækari merkingu kenn- inga hans. Þá myndi þeim verða ljóst og skiljanlegt svo margt, er þeir enn ekki skildu, meðan hann var með þeim — og þeir nutu hans.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.