Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1950, Síða 14

Sameiningin - 01.05.1950, Síða 14
60 Sameiningin Gef oss, drottinn, að læra að gæta tungu vorrar. Skapa í oss hreint hjarta og helga hugarfar vort allt, svo að sér- hvert orð vort sé vottur varúðar og kærleika hið innra með oss. Stýr minni tungu að tala gott og tignar þinnar minnast, lát aldrei baktal agg né spott í orðum mínum finnast. (Kirkjuritið) — Friðrik J. Rafnar _ Brot af sögu Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík Frá byrjun göngu sinnar fylgdist Sameiningin jafna af áhuga með kirkjumálum fslands. Á hinni löngu ritstjórnar- tíð Dr. Jóns Bjarnasonar var jafnan þar að finna fréttir og straumhvörf þess er þar var að gerast í kirkjulegum mál- um. Tíðum var þar greint á hin ýmsu atriði er á milli bar. Jafnan var fríkirkju hreyfingunni íslenzku fylgt fram, sem um margt er hið ákjósanlegasta fyrirkomulag í kirkju ætt- lands vors. Dr. Jón bar þá hreyfingu fyrir brjósti og ritaði margt og mikið um þau efni, einkum á fyrri árum; gerði hann þeim málum glögg skil. Fríkirkjuhreyfingin á íslandi á sér nú all-langa sögu, er ekki skal rakin hér, þótt fróðlegt væri upp að rifja. Þó má yfirleitt fullyrða að víðast hvar hefir fríkirkjuhreyfing- in ekki átt þann framgang eða þroska er vænta mætti, •— einkum þó af þeirri ástæðu að í ýmsum tilfellum hefir hún átt upptök sín í stundaróánægju heima í söfnuðum, oftar en hitt út af veitingum prestakalla. Hafa þær sakir ávalt verið jafnaðar. Nú mun svo komið málum að allur fjöldi íslendinga heima, jafnt lærðir sem leikir eru þeirrar skoð- unar að þjóðkirkju fyrirkomulagið sé — að.öllu athuguðu yfirleitt hið affarasælasta þegar að staðhættir og strjálbýli íslands er tekið til greina. Nú munu, að því oss er frekast ljóst tveir fríkirkjusöfnuðir starfandi á íslandi, sem sé, í Hafnarfirði og í Reykjavík. Þessi fáu orð snerta eingöngu fríkirkjusöfnuðinn í Reykjavík — sögu hans, viðgang og

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.