Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1950, Page 17

Sameiningin - 01.05.1950, Page 17
Sameiningin 63 annaríka þjónustuferil í fríkirkjusöfnuðinum 1922, sem þegar hefir verið að vikið. Hann þjónaði þar í rétt 27 ár. Söfnuðurinn óx enn að meðlimatölu og áhrifum í starfstíð hans. Glæsileg persóna og ágætir prédikarahæfileikar hans áttu sinn þátt í því. Listræni og fegurð einkendu prestleg- ar athafnir hans. Hjá honum fylgdust að eftir kunnugra frásögn innileg trú á fagnaðarerindi Jesú Krists, samfara frjálsum hug og miklu andríki. Einnig varð hann stórvirkur á ritvelli. Ægilega var hann ofhlaðinn störfum í söfnuðin- um. Tók mikinn þátt í störfum kirkjunnar yfirleitt. Að eðlileikum er það ljóst, að fríkirkjustarfið í Reykja- vík hefir jafna verið borið fram, eins og það var í fyrstu hafið af áhugasömum leiðtogum, konum og mönnum; er virkilegur skyldleiki með því og safnaðarstarfsemi vorri hér vestra. Væri freistandi og fróðlegt frekar um að rita, þótt ekki sé hér tími né tækifæri um að fjölyrða. Aldrei hefir ágreiningur átt sér stað milli þjóðkirkju og fríkirkju safnaðarins að því er kennisetningar eða trúaratriði snertir. Messuform eru að telja má nálega eins. Eftir lát séra Árna Sigurðssonar (d. 20. sept. 1949) munu guðfræðis prófessorarnir séra Ásmundur Guðmundsson og séra Sigurbjörn Einarsson hafa innt þar þjónustu af hönd- um til áramóta. Prestsembættið var svo auglýst til umsókn- ar af safnaðarstjórninni, og sóttu þessir: Séra Árelíus Níelsson á Eyrarbakka. Emil Björnsson cand. theol. Reykjavík. Séra Ragnar Benediktsson, Reykja- vík og séra Þorsteinn Björnsson á Þingeyri við Dýrafjörð. Kosningar fóru þannig að séra Þorsteinn Björnsson hlaut yfir 1600 atkvæði, séra Árelíus yfir 1300, Cand. Emil Björns- son yfir 1100 atkvæði; aðrir umsækjendur miklum mun lægri atkvæðatölu. Kirkjumálaráðuneytið staðfesti kosningu séra Þorsteins og leysti hann jafnframt frá embætti sínu í Sandapresta- kalli 4. febr. Séra Þorsteinn er talinn duglegur starfsmaður °g mjög prýðilegur söngmaður, hefir hann þjónað 1 Árnes prestakalli á Ströndum, og í Sandaprestakalli í Dýrafirði. — Stuttu eftir að prestskosning var afstaðin í fríkirkju- söfnuðinum, fóru þeir er fylgt höfðu cand.theol Emil Björns- syni í kosningunum þess á leit við hann að hann tækist á hendur þjónustu fyrir þá, þar sem þeim var það sérstakt áhugamál að njóta þjónustu hans, en einskis manns annars. Ekki skilst oss að þetta beri að skoða sem mótmæli gegn

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.