Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1950, Page 18

Sameiningin - 01.05.1950, Page 18
64 Sameiningin presti þeim er kosningu hlaut, heldur mun grundvallar- ástæðan vera sú að hlutaðeigendur telja að utansafnaðar menn, þeir sem ekki tilheyra fríkirkjunni, hafi skift sér af kosningunum, er og réði úrslitum. Ef til vill áttu einhver pólitísk straumhvörf hér einnig hlut að máli. Hvort nú að trúmálaafstaða eða mismunandi skilningur á trúmálum er hér að verki, þorum vér alls ekki neitt um að segja ókunn- ugleika vegna. Fylgismenn cand. Emils munu hafa lagt fast að honum að taka þjónustu í hinum Óháða fríkirkju- söfnuði, lét hann tilleiðast til þess, en að sögn í fyrstu, án allrar borgunar. Enn eru þeir, eftir sem áður að vorum skiln- ingi í fríkirkjusöfnuðinum, og munu greiða þar til prests og kirkju. Biskup íslands vígði cand. Emil 24. febr. — fór vígslan fram í dómkirkjunni; er séra Emil nú tekinn að starfa í hinum Óháða söfnuði, eins og hann er nefndur. Séra Emil er talinn efnilegur gáfumaður; hefir hann verið starfsmaður ríkisútvarpsins hin síðari ár. Ýmsan vanda á myndun þessa nýja safnaðar í för með sér, bæði fyrir fríkirkjusöfnuðinn sjálfan og prest hans, en einnig fyrir alla þá er að stofnun hins Óháða safnaðar standa, ekki síður en kristni ættlands vors yfirleitt. Af fréttum blaða að dæma er afarmikil aðsókn að mess- um séra Emils er hann flytur í einu af kvikmyndahúsum borgarinnar. Enn sem komið er, mun ekki hafa tekist að ná samningum um notkun fríkirkjuhússins fyrir þetta brot safnaðarins. Ætla má að nokkur hiti eigi sér stað, út af því sem að orðið er. Mikið er undir því komið að fá heppi- lega og kristilega úrlausn þessara mála. Eru ekki þessir at- burðir er skeð hafa vænlegir til blessunar ef vel er á haldið, og gæti ekki sá hiti er kann að eiga sér stað, ásamt auknum áhuga á andlegum málum verið notaður kristninni í vil til stærri sigurvinninga? — Oss virðist að úrlausnin bezta sé í því fólgin að báðir prestarnir þjóni og starfi í fríkirkju- söfnuðinum, hlið við hlið, með kærleiksvilja og sameinuð- um hugum og hjörtum og höndum, og myndi sigursælt reynast. Um 40 ár hafa tveir prestar þjónað hlið við hlið í dómkirkjusöfnuðinum í Reykjavík, og nú um nokkur ár tveir eða þrír í Hallgrímssöfnuði, og hefir ekki heyrst annað en að vel fari. Þannig virðist oss að málum fríkirkjusafnað- arins myndi bezt komið til framhaldandi affarasælu og sér- stæðu starfi kirkju Krists til heilla. Vér vonum, biðjum og trúum að svo giftusamlega mætti til takast. S. Ólafsson

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.