Sameiningin - 01.04.1958, Side 7
Sameiningin
5
skýrslan. Var hún mjög ýtarleg og gerði grein fyrir starf-
semi allra safnaða Kirkjufélagsins auk almennra upplýsinga.
Var skýrslan löng en eftirtektarverð. Þar næst gaf ritari
Kirkjufélagsins skýrslu framkvæmdarstjórnarinnar. Þá
kom skýrsla gjaldkera Kirkjufélagsins, hr. Óskars Bjork-
lunds. Niðurstöðutölur reikninganna sýndu, að $10,857.22
höfðu farið um hendur gjaldkerans, þar af hafði $8,229.93
verið varið til alls konar starfsemi að mestu utan Kirkju-
félagsins (Benevolence og Lutheran World Action), en
2,627.29 höfðu farið í starfskostnað við sjálft Kirkjufélagið,
þar af næstum 1,000.00 til útgáfu “The Parish Messenger.”
Gjaidkeri lagði einnig fram fjárhagsáætlun næsta árs. Eru
niðurstöðutölur hennar $21,641-58, eða um það bil tvöföld
upphæð sú, sem Kirkjufélagið hafði til umráða árið 1958.
Verða því margir að herða sig og leggja meira að sér, ef
fjárhagsáætlunin á að verða meira en pappírsdraumur. En
ekki er þörf að örvænta strax. Á hæla gjaldkera kom Ray
Vopni með skýrslu “stewardship secretary.” Var hún mjög
eftirtektarverð. Hvatti hann alla til að gera sitt ýtrasta til
að leggja hönd á plóginn til framgöngu Guðs Ríkis. Hann
benti á það, að hver fermdur meðlimur Kirkjufélagsins
þyrfti að gefa $6.18 til starfsemi utan safnaðanna, ef við
eigum að ná settu marki. Áður en fulltrúar héldu til hlað-
inna matarborða, hlýddu þeir á skýrslu Kvenfélagasam-
bandsins, sem vinnur mikið og þarft verk, sérstaklega í
sambandi við Sumarbúðirnar við Winnipegvatnið.
Séra Jóhann Friðriksson, 'sem nú þjónar í Scandia,
Alberta, en er enn meðlimur Kirkjufélagsins, prédikaði við
guðsþjónustuna eftir miðdagshléið. Þá tilkynnti forseti, að
nokkrir meðlimir Betel-nefndarinnar væru mættir reiðu-
búnir til að gefa skýrslu sína. Orð fyrir þeim hafði Dr.
P. H. T. Thorlakson. Var skýrsla sú hin glæsilegasta sökum
hins mikla starfs, sem hún bar vott um. Var nefndarmönn-
um þökkuð frammistaða þeirra og framkvæmdir allar- Er
rétt að geta þess hér, að eftir að þingfundum lauk á mið-
vikudaginn, héldu flestir þingfulltrúar og margir gestir til
Gimli og skoðuðu hið glæsilega Elliheimili. Var þar bjart
um að litast, en bjartast var yfirbragð vistmanna, gleði og
friður skein út úr hverri ásjónu. Þar töluðu þeir prestarnir
séra Eric Sigmar, séra Eiríkur Brynjólfsson, séra John
Fullmer, séra Ólafur Skúlason og að lokum séra Sigurður