Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1958, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.04.1958, Qupperneq 17
Sameiningin 15 IX. Hvað er nú af þessari sögu að læra? Ég hefi heyrt því haldið fram, að ekkert gagn sé að því að stunda sögu, því að hún endurtaki sig aldrei. En eigi er það í samhljóðan við orð prédikarans, að ekkert sé nýtt undir sólinni. Og enda þótt ekkert gerist aftur í þröngri bókstafs- merkingu, þá eru sömu lögmál ríkjandi í framtíð og fortíð. Við skulum athuga vel þau spor, er liggja fram til vax- andi samstarfs að kristindómsmálum, leitast við að feta þau og herða gönguna, minnugir orðtaksins: Það skal fram, sem fram horfir meðan rétt horfir. 1. Komum á reglubundnum prestaskiptum yfir hafið eitt og eitt ár í senn. Kostnaður af því af hálfu hins opinbera á ekki að þurfa að vera annar en ferðakostnaðurinn. í hann má ekki horfa, því að fátt mun treysta böndin betur í milli íslendinga báðum megin hafsins. 2. Ungir guðfræðingar af íslandi gjörist prestar vestan hafs. Prestaekla fer minnkandi hér heima á síðustu árum, svo að við erum fremur aflögufærir en fyrr. Varla má gjöra ráð fyrir langri prestsþjónustu yfirleitt vestra af hendi þessara manna. En „er á meðan er,“ og starfsárin vestra geta orðið ágætur undirbúningur undir athafnaríka prests- æfi austan hafs. 3. Guðfræðingar héðan stundi framhaldsnám við beztu guðfræðiháskóla vestan hafs, og guðfræðingar að vestan við háskóla okkar. Þetta á að verða miklu léttara en áður við vaxandi styrki, og má í þeim efnum vænta mikils af félaginu nýstofnaða Canada-ísland. 4. Hvers konar viðleitni verði studd til varðveizlu heim- ilda að kristnisögu Vestur-íslendinga. 5. Tímaritin, Kirkjuritið og Sameiningin, verði úlbreidd miklu meira báðum megin hafsins. Styrki íslenzka ríkið, ef þörf gerist. G. Árlega verði haldið uppi skipulegum hópferðum ís- lendinga yfir hafið með hagkvæmum samningi við flug- félögin.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.