Sameiningin - 01.04.1958, Qupperneq 15
Sameiningin
13
hafs, kirkjubókum, líkræðum, ættartölum og sæg af öðrum
handritum og ætlar enn á næsta sumri að leggja vestur í
slíkan leiðangur.
Trúmálaágreiningurinn varð minni og stefna Hins
evangeliska lúterska kirkjufélags varð í höfuðatriðum hin
sama sem Þjóðkirkjunnar heima. Dr. Björn B. Jónsson
forseti, sem fyrrum hafði átt í mjög hörðum ritdeilum við
dr. Jón Helgason, heimsótti ísland og hreif menn með ljúf-
lyndi sínu, víðsýni og frjálslyndi. Og Prestafélag íslands gaf
út erindaflokk eftir hann, sem hann nefndi Guðsríki og náði
góðri útbreiðslu. Samgöngur urðu greiðari í milli, og við
fengum marga ágæta gesti að vestan, m. a- á Alþingishátíð-
ina 1930, og ýmsir menntamenn héldu héðan vestur til fyrir-
lestrahalds. Námsmönnum frá íslandi fjölgaði einnig stöðugt
við háskóla vestra. Prestar að vestan, er heimsóttu okkur á
þessum árum, voru séra Albert Kristjánsson og séra Sig-
urður Ólafsson, séra Jónas A. Sigurðsson, og forseti Þjóð-
ræknisfélagsins, séra Rögnvaldur Pétursson. En um langt
skeið féllu niður ferðir ungra guðfræðikandidata eða presta
vestur um haf. Orsök þess kann að hafa verið prestaekla
hér heima á íslandi fremur en áhugaleysi á prestsstarfi
vestra. Gekk svo um hríð.
VII.
Þá var það mikið lán, að dr. Sigurgeir biskup Sigurðs-
son var valinn fulltrúi af Islands hálfu á aldarfjórðungs-
afmælisþing Þjóðræknisfélagsins í Winnipeg 1944. Ferðaðist
hann mikið um vestra og flutti margar ræður og guðs-
þjónustur við afbragðsgóða aðsókn og aðdáun. Varð koma
hans mjög til þess að vekja samhug og sameina þjóðarbrotin
báðum megin hafsins, en þó einkum til að efla samband með
kristninni vestan hafs og austan. Kirkjufélagið lýsti glöggt
afstöðu sinni með því að kjósa hann heiðursverndara sinn.
Jafnframt var hann kosinn forseti Þjóðræknisfélagsins
heima. Síðan hefir verið unnið að því jafnt og þétt að efla
samvinnu íslendinga austan hafs og vestan að kristnidóms-
málum. Hafa forsetarnir vestra sízt látið sinn hlut eftir
liggja, þeir dr. Richard Beck, séra Valdimar Eylands,
dr. theol., og séra Philip Pétursson.
Næsta ár, 1945, átti Kirkjufélagið 60 ára afmæli, og bað