Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1958, Page 10

Sameiningin - 01.04.1958, Page 10
8 Sameiningin Á miðvikudagsmorguninn fóru fram kosningar. Var nú ekki annar eins byltingarsvipur á þeim og hafði verið á síðasta kirkjuþingi í Mountain, þar sem nú voru allir endur- kosnir, en þá hafði nýr maður verið kosinn í hvert embætti. En á milli þess, sem atkvæði voru talin, voru fulltrúar á- varpaðir af Systur Önnu Melville, frú Björgu ísfeld, sem talaði um hina nýju sálma- og helgisiðabók, Dr. Earl Treusch og séra Edward Day. Þingheimur tók með þökkum boði Selkirk-safnaðar um að halda næsta Kirkjuþing þar. Lét einnig í ljósi þakklæti sitt til Mountain prestakallsins fyrir myndir, sem það færði Kirkjufélaginu að gjöf, en þær voru teknar á Kirkjuþinginu 1957. Forseti sleit síðan þinginu og árnaði fulltrúum góðrar heimferðar. Enn einu þingi var lokið. Enn einu sinni héldu þing- fulltrúar hver til síns heima. Undirbúningur allur og fram- kvæmdir hjá gestgjöfunum hafði verið til fyrirmyndar. En ekki er það, samt sem áður, mögulegt fyrir neinn að svo komnu máli að skera úr um árangur þessa þings. Sá árangur verður ekki lýðum ljós fyrr en á Kirkjuþingi 1959, þegar við heyrum skýrslur um strafsemi þessa árs. Árangurinn eins og ég hef þegar tekið fram, er kominn undir starfi safnaðanna, sem aftur byggist á skilningi og trú meðlimanna. Hversu reiðubúnir þeir eru að þjóna Drottni og leggja sitt lóð á metaskálarnar, sem getur ráðið úrslitum. En enginn vafi er á því, að það var heitust bæn allra, sem þetta þing sóttu, að ríkulegur árangur megi verða. Öll unnum við Kirkjufélaginu, en við verðum að sýna það í verki, því lítið lið er að „dauðum“ kærleika. Hjá blómunum Hérna þrífast blessuð blómin breiðist um þau sólarljóminn. Ylurinn og ilmur mætast ofanað og jörðu frá. Bló-min eru brautryðjendur benda oss á Drottins hendur. Vekur lotning, hjartað hrærir, horfir til mín ,,Fjólan blá.“ —INGIBJÖRG GUÐMUNDSSON

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.