Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1946, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.03.1946, Qupperneq 10
40 augum allra manna. Því ef menn sj á þá mynd með glöggri og lifandi sjón, þá hlýtur hún að laða menn til Guðs og frelsarans, og til þess málsstaðar og þeirrar afstöðu í lífinu, sem Jesús vill leiða alla menn til. Þegar vér horfum á Jesú, á kærleiks og krossferli hans, og sjáum geisla frá honum, kraft kærleikans, hreinleikans og sannleikans, þá hlýtur það að laða oss til að þrá að fylgja honum fast eftir, og fylgja honum alla daga vors lífs. H. Sigmar. Skynsemiátrúin Eftir Séra S. S. Christopherson Skynsemistrúin, svo kallaða á sér sögu jafngamla sögu mannkynsins. Máttur þess illa réðist á manninn í bernsku sinni og taldi honum trú um, að hættulaust væri með öllu fyrir hann að fara sínar leiðir, án til lits til fyrirskipunar skaparnas. Án til lits til uppeldis reglugerðar hans eða tilgangs hans með sköpun mannsins. Maðurinn átti frelsi sitt og hlaut því að mega fara eftir eigin vild; lofað gulli og grænum skógi ef hann gerði það. Þið munuð verða eins og Guð og vita skyn góðs og ills. Fögur loforð, skjall og fleðuskapur er ávalt útgengileg vara, og gengur í augu margra; það reið líka hér baggamun- inn. Lögmál Guðs voru brotin og tilgangur hans fótum troðinn. Maðurinn sneri skrefum sínum inn á rökkurfjöll synd- ar, hörmunga og vonleysis. — — — Tveir bræður gengu til fundar við Guð til þess að færa honum fórn. Bræður þessir, Kain og Abel, komu hvor með sína fóm. Fórn Kains góð í sjálfu sér, var ekki borin fram af því hugarfari, sem Guði er velþóknanlegt. Fórn Abels var með öðrum hætti, og Guð leit með velþókun til fórnar hans. Þetta gat Kain ekki þolað; hann lokkaði Abel út á akurinn, réðst á hann og drap hann. Nú skar Guð úr og dæmdi Kain þau örlög að vera landflótta og flakkandi á jörðunni.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.