Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1946, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.03.1946, Blaðsíða 12
42 Dr. Kagawa Við höfum heyrt um hann. Það var á sólskins dögum, þegar við horfðum á friðinn fegra jörðina. Alt sýndist leika í lyndi. Broshýr framtíðin blasti við oss og sýndist svo unaðsleg. Menningarþjóðirnar voru á hraðri framfara- leið. Vísindin leiddu sannleikann og nytsemina fram í dagsbirtuna, til þess allir gæt-u notið þeirra. Vegir á þurru landi, á vötnum og í lofti tengdu lönd og þjóðir saman. Aðskilnaðurinn minkaði stórum. Það var eins og jörðin væri orðin miklu minni en áður. Gamlar þjóðir komu fram út úr þokunni og urðu nýir keppinautar á sigurleið mannkynsins. Þá heyrðum við getið um Kagawa. Eg man eftir því, þegar eg fyrst leit Japaníta augum. Það var á Chicago sýningunni árið 1893. Að menningar- legri framsókn, myndarskap og háttprýði virtust þeir vera í fremstu röð Austurlanda-búa sem á sýningunni voru. Eg man, að eg varð hrifinn af því, hvað þeir voru nettir og framsæknir. Svo var ljós kristindómsins flutt til Japan, og trúboðið tók að blómgast. Söfnuðir, skólar og kirkjur risu upp. Fjöldi Japaníta gékk Kristi á hönd. Japan fleygði fram í iðnaði, verzlun og menningu heimsins, eftir því sem þá var efst á baugi; en kristindómurinn var einnig að sækja fram og eignast áheyrendur. Einn þeirra var Kagawa, ungur Japaníti, bráðgáfaður. Hann tók við kristindóminum á líkan hátt og Francis frá Assissi á miðöldunum gjörði. Við, sem erum kristindóminum alvanir og höfum fengið hann frá feðrum og forfeðrum, meðtökum hann, sumir hverjir, undur rólega. Engin hætta að við förum að gjöra úr honum sérstaklega mikið alvörumál. Okkur finst það fremur til prýði að bera kristið nafn, viljum síður láta kalla okkur heiðna; en að gjöra fórnarhugsjón kristindómsins að bók- staflegri alvöru finst mörgurn meðal vor tæpast nú lengur á dagsskrá. Þegar kristindómurinn náði haldi á sálarlífi Kag- awa, fór allt á annan veg. Sá boðskapur varð honum hið mesta alvörumál, varð honum líf en ekki dauð grein. Það var kristindómur ekki aðeins í orði, heldur einnig í verki.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.