Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1946, Page 7

Sameiningin - 01.04.1946, Page 7
53 bernskualdurinn. Við þessa skrá mætti mörgu bæta sem í hugann kemur, svo sem heilsu manna, efnahag, alþýðu- hylli, atvinnu og fleira. Hvað er það þá sem helzt stendur stöðugt í þessu eilífa brimróti mannlegra örlaga? Jú, post- ulinn kemur auga á þrent sem aldrei bifast á hverju sem gengur kynslóð eftir kynslóð, en það er: trúin, vonin og kærleikurinn. Þetta eru eilífar, sígrænar greinar á því lífsins tré, sem sprottið er upp af anda og áhrifum Jesú Krists. Vegna þess að hann er grundvöllurinn og uppistaða guðlegrar opinberunar, geta þessir eiginleikar, sem hann sýndi í persónu sinni, og staðfesti í dauða sínum og upprisu heldur aldrei raskast. Þessi þrenning, trúin, vonin og kærleikurinn, snertir hið innsta eðli vort, og mótar alt vort líf. Öll lífshamingja vor mannanna er imdir því komin að vér séum ríkir að þessum 'eiginleikum hvað sem líður ytri kjörum. Oss er öllum ljóst að trúin og vonin eru máttarstoðir mannlegs lífs, án þeirra getur engum orðið ágengt í lífinu. enda eru þær systur í einhverri mynd í eigu hvers manns. En þær tvær ná ekki lengra en að takmörkum lífs og dauða; þá verður trúin að þekkingu, og vonin að fullvissu. Kærleik- urinn er að því leyti ólíkur hinum að hann er víðfeðmari, heldur sér óbreyttur út yfir tímann og teygist inn 1 eilífðina, þar sem hann verður fyrst fyllilega ráðandi gjörðum Guðs barna. Trúin er hin volduga lyftistöng í Mfi mannanna. Post- uhnn skilgreinir hana á þá leið, að hún sé fullvissa um þá hl'uti sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem ekki er auðið að sjá. Á þessu hugtaki eru tvær hliðar: önnur snýr að Guði, en hin að samferðamönnum vorum. Vér getum án hvorugrar verið, og getum gengið framhjá hvorugri. Án trúar er ómögulegt að þóknast Guði. Réttlættir fyrir trú höfum vér frið við Guð. Trúið á Guð og trúið á mig, segir Kristur. Án trúar á Guð, mátt hans, forsjón og kærleika, getum vér ekki gengið til góðs götuna fram eftir veg. Trúin á Guð er sá skýstólpi sem jafnan verndar frá hita og þunga dagsins, og sá eldstólpi sem bezt hefir iljað oss í hretum kaldra nátta. Trúin er sú mikla afltaug sem gerir oss mögu- legt að halda höfðum hátt, og horfa glaðsinna og hugum- stórir fram á veginn, jafnvel þótt hann sé sveipaður móðu beiskra tára. Án trúar á mennina getur enginn komist

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.