Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1946, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.04.1946, Blaðsíða 14
60 Hin mikla Babilon var eitt sinn aðseturstaður konunga, og sveita annara höfðingja og mektarmanna, vitringa og glæsikvenna. Það var mikið um veizluhöld og óhóflegt bruðl. Tíminn gekk í íburðarmikla, tilgerðar háttsemi. Nú hafa rústirnar allrar þessara miklu glæsimensku flutt sinn þögula vitnisburð í margar aldir um mannlegt stæri- læti og ófullkomleika. Þar sem eitt sinn höfðingjar og mektarmenn eyddu æfi sinni við gleði og glaum, eiga sér heimkynni hin skæðu villidýr; tímgast og ala upp afkvæmi sín við kyrð eyði- leggingar og dauða. Veldissól hins volduga Babilonarríkis gekk til viðar og hefir aldrei risið síðan. Þau eru ekki fá hin fornu veldisdæmi, sem eiga sögu líka Babilonarríkinu; þau komust á stofn, urðu heimsveldi, hnignuðu og liðu undir lok; og fæstir minnast þeirra nú. Hvaða tildrög eru fyrir hruni þessara voldugu þjóða og einstaklinga ? Páll postuli gefur réttmæta skýringu á falli þeirra: Eins og þeir hirtu ekki um að varðveita þekkinguna á Guði, ofurseldi Guð þá ósæmilegu hugarfari, svo að þeir gjörðu það sem ekki er tilhlýðilegt, er þeir voru fyltir alls- konar rangsleitni og vonsku. Róm. br. 1:28. Út af þessu hefir aldrei brugðist, þegar menn fara að hafna, lítilsvirða og fyrirgera réttinum til sannrar þekk- ingar á Guði, eða þegar menn etja vitsmunum sínum gegn óbrigðulu náðarráði Guðs. Þannig hljóðar vitnisburður sögunnar frá upphafi vega. Þetta olli því, að fæstir af þeim ísraelsmönnum, sem lögðu upp frá Egyptalandi áleiðis til fyrirheitna landsins litu það augum; bein þeirra dreyfðust um eyðimörkina þar sem þeir lögðu leið sína, og þó birtist Guð þeim margvíslega á dásamlegan hátt. Þegar komið var inn í landið helga ítrekaði Guð sátt- mála sinn við þá, og 'þeir lofuðu hátíðlega að þjóna honum einum, en fyrir áhrif utan að frá gleymdist þetta loforð bráðlega; þeir fóru iðulega halloka fyrir óvinum sínum; leituðu þá á náðir Guðs, sem liðsinti þeim. Jafnskjótt gleymdu þeir sannri þekkingu á Guði þegar frá leið. Þannig gekk það á víxl þar til þjóðin spilti svo tilveru- rétti sínum, að hún sökk niður í þá eymd, sem hún býr við til þessa dags. — Framh.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.