Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1946, Page 12

Sameiningin - 01.04.1946, Page 12
58 hefði þegar gefið $510.00 til “Lutheran World Action.” Það er svo sem auðséð að þar hafa einstaklingar lagt fram mörg og góð tillög frá sér, auk offurs frá kirkjunum. Það var mér líka mikið gleðiefni er Dr. Franklin C. Fry skrifaði mér nýlega, að hann hefði frétt frá Kaupmannahöfn að kirkja íslands hefði þegar gefið meira en fimm “ton” af lýsi til hjálpar nauðlíðandi börnum í Þýzkalandi. Þó gjafir okkar íslendinga hér vestra verði með öðrum hætti, veit eg að við viljum öll að þær geti líka orðið góðar og gagnlegar. Eg er sannfærður u-m að prestar og safnaðarfulltrúar verða fúsir að taka á móti gjöfurn fóiksins til þessa fyrir- tækis, og framvísa þeim til féhirðis kirkjufélagsins, Mr. S. O. Bjerring, 550 Banning St., Winnipeg, Man. Hann fram- vísar svo öllu áieiðis til starfsins, sem framkvæma á. Við þurfum öll að muna að þörfin er brýn, og að nú er hin hag- kvæma tíð að sinna þessu hrópandi kalli. Sumarbúðir Sameiningunni er mikið gleðiefni að geta skýrt frá því að fyrir frábæra frammistöðu Bandalags Lúterskra Kvenna og meðlima byggingar nefndar, hefir nú verið ákveðið að reisa fimm byggingar, hinnar fyrirhuguðu sumarbúða á þessu vori. Minningarskáli (í minningu um fallna hermenn) verður að líkindum ekki byggður á þessu vori, því enn skortir æði mikla peninga í þann sjóð, til þess að hægt verði að hafa þá byggingu eins fullkomna og nefndin hefir hugsað sér. Þó getur ennþá úr því rætzt, ef rífleg og almenn fjárframlög fengjust þessu máli til styrktar. Einnig hefir starfsáætlun fyrir næsta sumar verið skipu- lögð að mestu leyti. Fjársöfnun stendur nú yfir í ýmsum byggðum, og eru allir bjartsýnir og öruggir um framtíð þessa máls. — Innan skamms mun koma fyrir almennings sjónir nákvæmt yfirlit yfir alt það fé sem safnast hefir, ásamt ítarlegum starfsáætlunum.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.