Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1946, Page 18

Sameiningin - 01.04.1946, Page 18
64 sýnist málið fá þar 'góðan byr. All-miklu fé hefir verið safnað, áhugi almennings talinn svo mikill að byggingu elli- heimilis virðist vera borgið. Vestur í Vancouver er verið að vinna að stofnun elli- heimilis; mun hugsjónin einnig þar eiga allmarga stuðnings- menn, er vinna að framkvæmd hennar. Enn sem komið er mun þó fjársöfnun þar skamt á veg komin. •— í Blaine, Washington, eftir frásögnum, sem birzt hafa í íslenzku vikublöðunum hér, og öðrum fréttum sem hingað hafa borizt, hefir málið fengið einkar góðar og almennar undirtektir. Nú þegar er verið að löggilda stofnun slíks heimilis þar, og búið að safna um tuttugu þúsund dollars. Áætlað er að heimili er geti hýst um fjörutíu vistmenn, áætiaður byggingarkostnaður fimtíu og fimm þúsund dollars, verði reist. Við fögnum þessum hreyfingum er stefpa að öryggi vors elzta fólks, sem borið hefir hita og þunga dagsins. Við vitum það öll, að vor trúfasti og sárt saknaði leiðtogi og vinur, Dr. B. J. Brandson, bar það jafnan fyrir brjósti að efri dagar hinna þreyttu landnema mættu verða bjartir og á- hyggjulausir. En til þess að tryggja þessa hugsjón, Betel og öðrum elliheimilum til handa, sem stofnuð kunna að verða, þarf karlmannlega djörfung í framkvæmdum, al- mennan áhuga, og drengileg fjárframlög. Sannur þjóðar- metnaður felst í því að sjá um það, að hinir öldruðu eigi fagurt æfikvöld, að önnum dagsins afloknum. Næsta kirkjuþing félags vors, hið sextugasta og fyrsta, er ákveðið að haldið verði í Minneota og umhverfi, í Minni- sota ríki — prestakalli séra Guttorms Guttormssonar, og hefst fimtudaginn 27. júní, síðdegis. — Úrval úr ritum Dr. Jóns Bjarnasonar. er nú aðeins óútkomið. Bókin verður yfir 300 blaðsíður, og hefir inni að halda fyrirlestra, ræður og ritgerðir, frá hendi hins mikla ieiðtoga og hugsjónamanns, eins og allir viðurkenna að séra Jón Bjarnason vissulega var. Bókin hefir og inni að halda margar myndir — og er hin eigulegasta bók, samboðin minningu vors látna leiðtoga.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.