Sameiningin - 01.05.1949, Side 4
66
SAMEININGIN
KOM, DROTTINN JESÚ
(BÆN Á PÁSKADAGSKVÖLD)
Kom, drottinn Jesú; — degi halla fer.
Sjá, dimman nálgast; herra, með oss ver.
Senn grúfir nótt, — en þú ert Ijós og líf; —
ó, lausnari, vor geym í þinni hlíf.
Kom drottinn Jesú; — fær oss páskafrið,
er fylli hjörtun von um sátt og grið.
Kom, drottinn Jesú; — leggðu yfir lönd
til líknar þína gegnumstungnu hönd.
Kom, drottinn Jesú; — þerra tregatár; —
vér treystum þér, ■— ó, græð hin djúpu sár.
Heyr, jörðin stynur; — sefa sorg og neyð; —
úr syndakvölum ráðvillt mannkyn leið.
Kom, drottinn Jesú; — deyja verður hver;
ó, drottinn, kom, er stund vor nálgast fer
og, drottinn, veit, að dáið getum vér
í dýrri von um líf og starf hjá þér.
Kom, drottinn Jesú; ■— hlessa bæ og sveit
og blessun svefnsins hverri sálu veit.
í þínu nafni börn guðs loka brá
og bíða morguns. — Jesú, vek oss þá!
VALD. V. SNÆVARR