Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1949, Side 7

Sameiningin - 01.05.1949, Side 7
SAMEININGIN 69 athugun þess, hve vel þau voru skipulögð, hvernig að prestar og leikmenn gengu með heilum huga að verki til áætlana og framkvæmda í kirkjulegum málum. Það var ekki bægt að segja að þau væru mannfundir þar sem að komið var saman til að “sýna sig og sjá aðra.” Oftast nær voru þar flutt frábærlega vönd- uð og ítarleg erindi og fyrirlestrar er athygli vöktu sökum bersögli og snildar, oft djúptæk fræðandi erindi. Stundum fluttu erindin ádeilumál: en þar voru djarfmannlega átök; og meðferðin á meinum samtíðarinnar engin vetlingatök; stundum afar hörð, — ef til vill of hörð; en andinn hreinn og hressandi, eins og svalvindar ofan af íslandsfjöllum, er dreyfðu lágmóðu lofti úr bygðum, — og úr hugum manna. Sum þessi erindi frá fyrri árum félags vors, komu ómjúkt við kaun samtíðarinnar. — Þau voru laus við allan hálfleik — alla tæpitungu, — sum þeirra, eins og t.d. ýmsir fyrir- lestrar Dr. Jóns Bjarnasonar voru stórfeldasta húðstrýking sem enn hefir birzt á prenti um mein Islenzku þjóðarinnar austan hafs og vestan. Það sveið undan slíkum orðum. Þau voru ólík allri meðalmensku. Þau voru ekki vinsæl í bili. En kærleikur spámannsins og sjáandans bjó í þeim. Þessvegna voru þau lífræn og græðandi , svo framarlega að orðtækið forna er satt: “Sá er vinur sem til vamms segir.” — Bergmál þessara fyrirlestra barst víða út um bygðir Vestur-íslendinga, — hlutu að vekja hugsun og umtal — og stundum mikla mótspyrnu. Þeir bárust líka heim til afdala og annesja íslands. ■— Þeir vöktu bæði andúð og hliðstæði í hugum margra hugsandi manna. Andmæli gegn þeim, og meðmæli með þeim birtist í blöðunum og tímaritum. Þeir voru straumhvörfum vald- andi. Þeir voru lífrænir. Sumir háttstandandi menn á íslandi — og alþýða manna heima, allvíða ekki síður en hér vestra voru vaktir upp af værum svefni. Þeir voru fjölorðir um það hversu háværir að Vestur-íslenzku prestarnir voru; en flestum kom þeim þó saman um að þeir væru vakandi, þótt öfgvafullir kynnu þeir að vera! Ávalt voru leikmenn í stórum meiri hluta á þingum vor- um, er svo enn þann dag í dag. Ýmsir í þeira hópi komu víða við sögu, og voru oft valdir menn í hverju sæti, menn

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.