Sameiningin - 01.05.1949, Blaðsíða 13
SAMEININGIN
75
Nú er þessi tilkomumikli leiðtogi í fangelsi í Csillag í
Szeged. Konunni hans er leyft að heimsækja hann einu-
sinni á hverjum 6 vikum og má þá dvelja í aðeins í 10 mínút-
ur, sagt er að stjórnin hafi boðið honum styrk fyrir fjölskyldu
hans meðan hann væri í fangelsinu, en hann neitaði að
þiggja það boð. —
Þeir sem sáu þennan mann á ferðalagi hans í Bandaríkj -
unum fyrir tveimur árum minnast þess hvað djúp sorg
virtist stimpluð á ásjónu hans. Höfundur ritgerðarinnar í
The Lutheran segir að sér hafi skilist að hér væri maður
sem engann hlátur ætti eftir í huga sínum, — það var engin
gleði í vingjarnlega brosinu, og í augum hans fanst honum
speglast einhver stórkostleg reynsla sem hann hefði farið
í gegn um og mundi aldrei geta gleymt.
Við sem erum trúbræður hans biðjum guð að blessa
hann og veita honum og ástvinum hans styrk fyrir hverja
líðandi stund.
HEIMSÓKN Á ELLIHEIMILIÐ
í VANCOUVER, 3. FEBRÚAR
Eftir pÓRÐ KRISTJANSON
Á fimtudaginn 3. febrúar heimsóttu okkur hér á íslenzka
elliheimilinu “Höfn” prestarnir séra Haraldur Sigmar D.D.
sem er fasta prestur meðal okkar íslendinga hér í borg og
nágrenni, ásamt séra Eric syni sínum, frá Glenboro, sem um
hríð hefir verið í heimsókn hjá foreldrum sínum og öðrum
ættingjum á Kyrrahafsströnd.
Prestarnir höfðu ákveðið að messa hér þann dag síðdegis.
1 för með prestunum voru frú Sigmar, kona séra Haraldar,
og Mrs. Stefán Sigmar frá Argyle. Dr. Haraldur flutti aðal-
ræðuna, en sonur hans las guðspjallið ásamt “Faðirvor”
á íslenzku. Séra Eric söng 2 einsöngva á íslenzku, og móðir
hans spilaði undir á “píanóið.”