Sameiningin - 01.03.1936, Síða 4
38
SÉRA JÖN BJARNASON, D. D„
Ritstjóri frá 1886—1914.
alt þetta getr verið og er íslendingum í Ameríku nauðsyn-
legt.
Á íslandi eru náttúrlega aðrar nauðsynjar ofaná:—að
meira stjórnfrelsi fáist, að búnaðrinn taki framförum, að
verzlunin komist í hendr landsmanna sjálfra, að mönnum
notist tii hlítar sínar eigin fiskiveiðar, að þrifnaðr og hýbýla-
prýði verði meiri en alment er enn, að læknamál landsins fær-
ist i betra horf, að samgöngur verði margfalt greiðari en er
bæði á sjó og landi, að upp komi innlendr iðnaðr, að betri
og meiri skólamentun fáist bæði fyrir alþýðu og embættis-
manna-efni. Alt þetta eru vitanlega nauðsynjar.
En engar af þessum nauðsynjum fyrir í'ólk vort hér í
landi eða á fslandi standa við í stað. Þær eru altaf smá-
saman að brevtast. Þannig er margt nauðsynlegt á íslandi
nú, sem ekki þótti og jafnvel eigi var það áðr. Og hér á
meðai íslendinga í Ameríku kemr altaf upp fleira og fleira,