Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1936, Blaðsíða 22

Sameiningin - 01.03.1936, Blaðsíða 22
56 hörmunganna síðan. Fáir eru nú lengur svo blindir, að þeir kenni aðeins einni þjóð um stríðið. Stríðið var ávöxtur samkepnishyggjunnar, sem ríkt hefir hjá öllum þjóðum. Eftir er menningarþjóðir veraldarinnar höfðu l'logist á í fjögur ár á vigvöllum, hófst viðskiftastríð, sem enn stend- ur. Framan af var það sem leikur. Menn fóru að veðja um gangverð varnings og gjaldeyris. Menn hugðust ríkir verða á ágizkunum tómum; þeir veðjuðu um það, hvort hveitikorn stigi í verði á morgun eður lækkaði, hvort gengi þessa hlutabréfsins eður hins færi hækkandi eður lækkandi daginn eftir. Það var því líkast sem almenningur allur væri kominn með sparisjóð sinn til Monte Carlo og ætlaði sér að margfalda hann á einu kvöldi við lukkuhjólið. En þegar minst varði sprakk spilabankinn. Langflestir höfðu ]iá tapað öllu sínu í brasltinu. Þeir hinir fáu, sem hirt höfðu skildingana, læstu þá niður í kistu og settust á lokið. Kom þá “kreppan.” Svipað fór þjóðunum sín á milli, nema hvað þær höfðu fæstar annað að veðja um eftir stríði en skuldirnar. Svo fór, að Þjóðverjar gátu ekki lengur horgað skuldir og skaðabætur öllum þjóðum. Þá gátu ítalir og Frakkar heldur ekki horg- að Englendingum og engir þeirra Ameríku-mönnum. Fór þá gullkálfurinn að skjálfa svo á beinunum að öll jörðin hristist. Gullstikan brotnaði í Englandi og á Norðurlöndum. Sterlingspundið léttist á lóðinni. Gjaldeyrir flestra þjóða varð að spyrja sjálfan sig að heiti á hverjum morgni. Am- eríku-dollarinn einn sinna stéttarbræðra hljóp í spik, en verður nú að halda kyrru fyrir heima, því bræður hans erlend- is ráða ekki við hann. Svona fór um samkepnina. Hún varð inát. Og þar við situr. Samkepnishyggja samtíðarinnar hefir teflt tafli mann- lífsins í mát. Iivergi má nú peð né hrók færa í viðskiftum. Þetta köllum vér “kreppuna.” í auðugasta landi veraldar- innár er mælt, að um sjö miljónir manna sé atvinnulausar og margar miljónir matarlausar. Allar þjóðir eru ráðalaus- ar. Með hverjum degi fjölgar þúsundunum, sem lífinu þarf að halda í á almannafé. Ein stjórnin ýtir frá sér til hinnar. Skattgjaldendur hefjast handa til mótspyrnu við auknar álögur, en öreigalýður fer fylktu liði um götur borganna. Glæpa-öld er upprunnin úr þessu ástandi, svo ill, að öllum ægir við. Hvar er svo kirkjan,—kirkjan þar sem bræðurnir mætt-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.