Sameiningin - 01.03.1936, Blaðsíða 12
46
Ný trúarbrögð
Eftir séra Friðrik J. Bergmann.
Ýmsir tala um ný trúarbrögð. Kristindóminn álíta þcir
úreltan; hann hafi þegar tapað gildi sínu. Hann hafi verið
góðr á sínum tíma, en sá tími sé þegar liðinn; hann hat'i þá
uppfylt kröfur mannsandans og fullkomlega bætt úr trúar-
þörfinni. En síðan hafi andi mannsins ]n-oskast. Þegar van-
þekkingin sc mikil í heiminum, sé trúarþörfin að sarna skapi
sterk. Þegar menn viti lítið, þurfi menn að trúa mikið. Nú
hafi mannsandinn hrist af sér vanþekkinguna; nú viti menn
svo margfalt meira en áðr. Þess vegna sé trúarþörfin að
minnka og breytast. Mönnum sé nú ómögulegt að trúa eins
miklu og áðr; ómögulegt að trúa því sama og áðr.
Þess vegna er talað um ný trúarbrögð, sem leysa eigi
trúarbrögð kristindómsins af hólmi. Reyndar virðist ekkert
samræmi eiga sér stað um það, hvernig þau eigi að vera,
að öðru Ieyti en því, að mönnum virðist koma saman um,
að þau eigi að vera ógnar-einföld, innihalda sem fæst atriði,
vera sem allra breiðust, svo sem flestir sjái sér fært að játast
undir þau, án þess að taka mjög nærri sér. Yfir höfuð að tala
mun óhætt að fullyrða, að menn viti enn])á ekki, hvernig
þau nýju trúarbrögð eigi að vera, sem leysa skuli trúarbrögð
kristinna manna af hólmi.
En hvernig þurfa þau að vera? Hvaða skilyrði þurfa
þau að hafa, til þess Ijós þeirra verði svo bjart, að það
slökkvi birtu kristindómsins og hafi jafn-mikla eða meiri
þýðing fyrir anda mannsins en trúarbrögð kristindómsins
hafa haft nú í nærri tvö þúsund ár?
Þau verða að vera fulkomnari,—það eilt er víst. Þau
verða að hafa meiri að bjóða trúarþyrstum manninum en
kristindómurinn hefir að bjóða. Hvert er aðalatriði allra
trúarbragða. Er það ekki hlutfallið eða sambandið, sem
maðrinn stendr i við skapara sinn? (jll trúarbrögð hljóta
að sýna hjartalag guðs til mannanna og hjartalag mannanna
til guðs. Þau sýna manninum inn í guðs hjarta og inn í hans
eigið hjarta. Að opinbera og skýra eðli guðs og eðli manns-
ins og sýna, hvernig manneðlinu er unt að líkjast guðseðlinu,
—það er þetta, sem er og verðr aðalhlutverk alira trúar-
liragða. Þau trúarbrögð, sem tekst þetta bezt, munu ætíð verða
trúarbrögð þess hluta mannkynsins, sem lengst er á leið kom-