Sameiningin - 01.03.1936, Síða 20
54
mannanna, svo sem núleg neyðartíð alls mannfólksins ber
vott um.
Það sannar einnig, hversu skamt upp frá dýralífinu
mannlífið er ennþá sprottið.
Dýrið hugsar ekki um annað en sjálft sig. íkorninn
týnir hnetur í hrúgur og leynir þeim undir trjánum, svo
hann fái notið þeirra einn. Hundurinn, sem ofan á verður
í áflogunum og nær beininu, her það í munninum á afvikinn
stað og klórar mold yfir það, svo það geymist þar til hann
vitjar þess aftur.
Dýrunum er það vorkunn, þótt þau rífi hvort af öðru
og éti hvort annað. Þau hafa ekki gáfurnar okkar til að
stofna félög og stýra þeim almenningi sínum til heilla, eins
og við þjóðfélögunum okkar!
En hversu miklu lengra erum við mennirnir komnir,
að öðru leyti en því, hvað við kunnum að “fara betur með
það?”
Síngirni dýranna kemur fram í mönnunum með mörg-
um hætti. Alveg eins og dýrin, hafa flestir menn ákafa eðlis-
hvöt til þess að sölsa undir sjálfa sig sein mestu þeir orka
og njóta þess einir. Það er samkepnin. Sumir verða hlut-
skarpari en aðrir og fáir hlutskarpastir allra. Þeir, sem í flest
beinin ná, eru Iíklega ekki hótinu grimmari, en hinir, sem
af beinunum missa. Þeir, sem aldrei komast yfir nema
lítið, eru oll engu síður ágjarnir, en hinir, sem í meira ná.
Það liggur í augum uppi, að ef hér á eitthvað að breyta til,
þá verður það ekki gert með lögum, heldur með breytingu
eðlishvatanna sjálfra.
Ekki eru gæðin, sem l'logist er á um, fjármunir einir
saman, eður auðlegð. Mannvirðinga - hnossin eru bitbein
engu minni. Flestum mönnum kippir meira eður minna í kyn
páfugla. Smátt má það mannfélag vera, ef ekki bólar þar á
mannjöfnuði og öfund undir niðri. Vaxi einhver að virð-
ingu, verður hann fyrir illgirni annara. Af þeirri rót er
runninn ójöfnuður mestur í mannfélaginu. Þaðan stafa ein-
vígin í félagslífinu, flokksfylgið og flokkshatrið. Það eru
áílogin um efstu sætin, hvort sem menn gera sér grein fyrir
því, eður ekki, sem valda að miklu leyti óláni okkar í allri
sambúð og félagslifi, bæði í smáum félögum og stórum, bæði
í ríki og kirkju. Ekki heldur lireytist það nema með breytt-
um hvötum sálarlífsins.
Þá er dýrslund mannsins ekki sízt augljós í því, hve