Sameiningin - 01.02.1940, Blaðsíða 3
$amriningin.
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi Isl. í Vestrheimt
Ritstjórar:
Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A.
Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A.
Séra Rúnólíur Marteinsson, 493 Lipton St., Winnipeg.
Féhirðir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
55. ÁRG. WINNIPEG, FEBRÚAR, 1940 Nr. 2
Kirkjufélagið—fortíð þess,
nútíð og framtíð
(Erindi flutt á kirkjuþingi í Mikley 1939).
Þetta umtalsefni hefir, ef til vill, vakið þá hugsun hjá
einhverjum að eg ætli mér þá dul að kveða upp nokkurs
konar fullnaðardóm yfir sögu vorri. Svo er þó ekki. Hvorki
teldi eg mig til þess færan, né heldur finst mér það æski-
legt að reyna að binda viðhorf sögunnar við álit nokkurs
eins manns. Það miklu hógværara hlutverk vakir fyrir mér
að ræða við ykkur í bróðerni um ýmislegt er viðkemur
sögu vorri og viðhorfi þannig, að það mætti að einhverju
leyti glöggva nokkra drætti, miða að sarnúð og dómgreind
bæði gagnvart því sem var og er, og beina huganum mót
framtíðinni og úrlausnarefnum hennar, sem allra minst
fjötraðir eða blindaðir af hleypidómum frá því liðna. Eg
geri mér grein fyrir að þessu takmarki verður einungis náð
þannig að vér hefjum sanngirni og réttsýni fram yfir blinda
hliðhollustu við einskorðuð sjónarmið. Vegna þess að það
eitt, sem mælir með sér fyrir upplýstri hugsun, getur staðist
þegar til lengdar lætur, reiði eg mig meira á vakta dóm-
greind ykkar en á fullveldi míns eigin úrskurðar. Bæði
sagan, nútíð og framtíð, þarfnast sjálfstæðrar hugsunar til