Sameiningin - 01.02.1940, Blaðsíða 11
25
Á refilátigum
Ertu kominn, landsins fo-rni fjandi?
Fyrstur varsta enn að sandi,
fyr en sigling, sól og bjargarráð.—
Svo kveður Matthías, þegar hann á vordegi lítur hafís-
hreiðuna fyrir ströndum islands. Eitthvað svipað hefir
líklega mörgum orðið á munni þegar þeir vöknuðu við
vondan draum á þessu hausti, og heyrðu um friðslitin
austur í Evrópu. Það hafði látið ófriðlega í útvörpum og
fréttasímum vikurnar á undan; og þó var fregnin svipleg,
óvænt, nærri því ótrúleg, þegar hún harst út um heiminn.
Var það satt — spurði víst margur sjálfan sig — gat það
verið satt, að vígaofsinn hefði nú enn einu sinni slitið af
sér öll bönd, eins og sá djöfulóði forðum; var hann nú
kominn enn á stúfana, búinn að stofna heiminum út í blóð-
uga styrjöld aftur? Já, það var satt, því miður. Herskap-
urinn var fljótur á sér enn einu sinni; fyrri til en sann-
girni, hógværð og heilbrigt vit. Hann hafði banað síðustu
friðarvon með sprengikúlum á meðan þjóðirnar sváfu.
Friðsamir menn eru víst aldrei fullviðbúnir þegar stríð
skellur á; og það jafnvel þótt þeir hafi virt fyrir sér til-
drögin vikum eða mánuðum á undan. Friðrofin koma
þeim altaf eins og á óvart; þeir eru vonsviknir, forviða.
Vígaharkan er svo gagnstæð öllu eðli slíkra manna; ekki
aðeins hugsjónum þeirra, heldur öllu því sem þeim finst
vera rétt og sjálfsagt og eðlilegt. Lendi þeir í hríðinni, þá
verður þeim raunveruleikinn sjálfur, sprenginga-skarkalinn
og mannfallið, eins og illur draumur.
Það er því lítil furða, þótt friðarmönnum gangi einatt
illa að koma sér fyrir í ófriði. Þeir eiga þar ekki heima.
Þeir tapa jafnvæginu, lenda út í öfgar og ósamkvæmni.
Sumir fyllast heift við einhvern sérstakan persónugjörving
vígastefnunnar, eins og Vilhjálm keisara; aðrir ausa dóm-
unum jafnt á báðar hliðar, eins og málavextir komi þar
alls ekki til greina; aðrir afsala sér allri hugsunarábyrgð
og láta leiðast af hervaldinu. Það er svo auðvelt að villast
á þeim refilstigum.
Kirkjan er friðarstofnun; stríðið, sem hún, á í, er ekki
við blóð og hold. Meistari hennar er friðarhöfðingi. Hún