Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1940, Qupperneq 6

Sameiningin - 01.02.1940, Qupperneq 6
20 það inuii erfiðari hve lítil var reynslan í félagslegu tilliti. Það átti langt í land að samvinnukendin þjálfaðist eins og þyrfti. (Framhald) —Ií. K. ó. Dr. Rögnvaldur Pétursson Fallinn er atkvæðainikill Vestur-íslendingur, er átt hefir mikinn þátt og stundum ákvarðandi í málum vorum yfir- leitt frá því hann komst á fullorðins aldur. Sem kennimað- ur, ritstjóri og forystumaður í menningarstarfi hefir hann staðið í hroddi fylkingar meðal fólks vors, svo bæði skoð- anabræður hans og andstæðingar í einu og öðru finna nú til þess að tómlegra er um að líta, er hann rúmlega sextugur er horl'inn oss sýn. í þessum ummælum er ekki miðað að því að gera nein full skil lífi og starfi þessa fráfallna mæta manns. Það, sem fyrir mér vakir, er að minnast hans að einhverju leyti eins og hann kom mér fyrir í langri viðkynningu. Óafvitandi og mót vilja mínum kann það að Iitast af því að í ýmsu áttum við ekki samleið í skoðun. Fersónulega varð eg aldrei fyrir öðru en drenglyndi og vinsemd frá hálfu Dr. Rögnvaldar, svo frá þeirri hlið þarf ekkert að glepja mér sýn. Opinbert starf og l'ramkoma Dr. Rögnvaldar snertir einkum þrenn mál: kirkju- eða trúmál, íslenzka þjóðrækni og almenn mannfélagsmál. Spor hans á þessum leiðum eru allglögg, svo ekki ætti að vera villugjarnt að rekja. Uppalinn og fermdur í lúterskri kirkju hneigist hugur hans þegar á æskuárum að róttækari afstöðu. Það deyfir eðlilega ekki hugarstefnu þessa að honum opnast leið til að stunda nám við guðfræðaskóla únítara í Bandaríkjunum. Að hann hafi áúnnið sér hylli og tiltrú kennara sinna og annara leiðtoga þessarar kirkjudeildar fyrir hæfileika og dáð, ber öll síðari saga vott um. Fyrir hans tilstilli og milligöngu eykst mjög hugur þeirra að efla únítariskt trúboð meðal fslendinga, og uppfrá því að hann hefur starf og til dauðadags er hann líf, sál og stjórnandi andi þeirrar hreyf- ingar. Þar kemur fram tillag hans til kirkjusögu Vestur- íslendinga. Þetta starf var frá byrjun tengt við hérlent kirkjulíf. Frá því hreyfingin hófst, ræður sú hugsun að íslenzkt

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.