Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1940, Síða 16

Sameiningin - 01.03.1940, Síða 16
46 Með þessum atburðum hóf hann að draga menn til sín. Aðdráttarafl hans var tekið að starfa í heiminum. Svo kom hvítasunnan og þúsundir gengu Ktisti á hönd. Læri- sveinar hans fengu guðlega djörfung til að vera vottar hans til yztu endimarka jarðar. Skari manna gekk hiklaust mót kvalafylzta dauða fremur en að afneita honum. Á sínum tíma könnuðust konungar og ríki við vald hans. Norður- álfan varð kristin. Og enn leggur kristindómurinn undir sig ný lönd og trúboðar hans ferðast um alla jörðina tii að flytja mönnunum friðmál hans. Að þessu athuguðu virðist vel viðeigandi að segja: “Sigurhetjan, Jesús minn.” Hann dregur enn þá menn til sín. Með þessu hefir verið bent á fáeina lauslega drætti sem sýna uppháfning Jesú til valda á jörðu. Við athugun þess koma mörg atriði í hugann. Eitt, sem allir skynigæddir menn vita, en veita þó ekki nógu nákvæma eftirtekt er það, að vald Jesú er andlegt. “Mitt ríki er ekki af þessum heimi,” sagði hann við Pílatus. “Guðsríki er hið innra með yður,” sagði hann við annað tækifæri. Rithöfundur nokkur hefir þetta að segja: “Ef veröldin hefði krýnt Jesúm konung sinn og hann ráðið yfir öllu gulli hennar, hefðum við aldrei þekt nafn hans. En við bárum honum gall-edik að munni, stungum spjóti í síðu hans og negldum hann á kross. Og hann er hinn eilífi sonur dýrðarinnar.” Hann tignar hugur vor, hann elska hjörtu vor, honum helgum vér vilja vorn. Með enn fullkomnari orðum en þessum hefir Páll postuli lýst upphafning Jesú í Filippí-bréfinu: “Hann tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur; og er hann kom fram að ytra hætti sem maður, lítillækkaði hann sjálfan sig og var hlýðinn alt fram í dauða, já, fram í dauða á krossi. Fyrir því hefir Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig, þeirra sem eru á jörðu, og þeirra sem undir jörðunni eru, og sérhver tunga viðurkenna, að Jesús Kristur sé Drottinn, Guði föður til dýrðar.” Áhrifamikið orð höfum vér einnig frá postulanum Pétri um upphafning Jesú: “Hann er steinninn, sem einskis var virtur af yður húsasmiðunum; hann er orðinn að hyrningarsteini. Og ekki er hjálpræðið í neinum öðrum, því að eigi er heldur annað nafn undir himninum er menn

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.