Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1940, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.06.1940, Blaðsíða 3
^ami'tmitgtn. Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Í8lendin<i<> gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheivu Ritstjórar: Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A. Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A. Séra Rúnólfur Marceinsson, 49 3 Lipton St., Winntpeg. Féhirðir: Mrs, B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. 55. ÁRG. WINNIPEG, JÚNf, 1940 Nr. 0 Hirðisbréf biskupsins ....... _ (Framh.) Biskupinn sér þjóðlífið í hinu nánasta sambandi við kirkjuna. Er það í alla staði rétt. Hann krefst þess ekki, að kirkjan eignist neinn varhugaverðan veraldar valdasess heldur hitt að hún sé alstaðar samvizkusamlega á verði, þjóðinni til nytsemdar og blessunar. Hún á ekki að láta sér “neitt vera óviðkomandi sem horfir til þjóðfélagslegra heilla.” Hún getur tekið ákveðinn, virkan þátt í líknar- málum og öllu því er lýtur að góðu siðferði. Heilbrigði- og atvinnumál geta fengið milcla og holla aðstoð frá kirkjunni. Á margt annað getur hún lagt hönd án þess að hrifsa í sínar hendur stjórnarfarslegt dómarasæti. Hún á að anda góðum áhrifum á öllum sviðum þjóðlífsins- Hún á að þjóna en ekki drotna. Sýnishorn af því sem biskupinn segir er þetta: “Vér höfum, elskulegu bræður, hið ábyrgðarmesta og vandasamasta, og jafnframt helgasta hlutverk með þjóð vorri. Vér eigum að ganga inn í helgidóma þjóðarinnar og kenna henni hin eilífu sannindi, veginn til Guðs. Vér eigum að vera leiðtogar hennar í öllu því, sem fyrir kemur á veg'- ferð lílsins. Presturinn á að lifa með þjóðinni í gleði og sorg, standa við hlið einstaklingsins á áhrifastundunum í iífinu, sem vinur og bróðir; sterkur, göfugur ráðgjafi.”

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.