Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 3
Mánaðarrit iil stuðnings kirlcju og kristindómi íslendinga gefiff út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. i Vestrheimi XJj. árg'. WINNIPEG, MARZ, 1925 Nr. 3. Hátíðirnar miklu, I. Konungurinn kemur. Pálcmasunnudagur. Enginn konungur hefir komið til ríkis með sama íhætti og Jesús Kristur kom til ríkis síns. Öðrum konungum hefir verið fagnaS með meiri viöhöfn. Fyrir þeim hafa fariö og á eftir þeim hafa komið fagurbúnar herfylkingar. Hvarvetna hefir glampað á sverð riddaraliðsins og fallbyssu-skot hafa kveðið viS í öllum áttum. Konungar jarSarinnar koma meS valdið meS sér. Jesús hafSi ekki annaS liS til fylgdar sér en alþýSuna. Gunnfánar þeir, er bornir voru fyrir honum, voru pálmar, — metki friSarins. Hann kom íhógvær í nafni Drottins. Kon- ungur himinsins kom meS kœrleika-nn meS sér,. Þegar konungur tekur viS jarSnesku ríki, er hugurinn venjulega fullur tilhlökkunar. Hann geiár sér ótal glæsilegar vonir um sigurvinningar. Vald sitt hygst hann nota munu til þess aS hefja ríki sitt og láta frægSarorö sitt berast út um veröldina. Þegar Jesús hélt innreiS til ríkis síns, var hugur hans full- ur af sorg. Hann staSnæmdist á Olíufjallinu til aö gráta. Hann sá framundan ógæfu mannanna, sem hann var sendur af GuSi til aS vera konungur yfir. Hann sá þaS fyrir, aS þaS myndi reynast sér ofurefli, aö safna mönnunum í ríki sannleik- ans. Hann vissi þaS fyrir, aS svo mikiö væri af myrkri í hug- skotum mannanna, aS þeir ekki gæti gert sér ljósið aS góöu. Hann vissi, aS í þessu mannfélagi, sem hann átti aS; drotna yfir,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.