Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1925, Qupperneq 4

Sameiningin - 01.03.1925, Qupperneq 4
66 var mikið af hatri, og lygi, öfund og ágirnd, svo: það mannfé- lag myndi óhæft til þess, að stofna ríki kærleika, réttlætis og sannleika. Hann sá þaS fyrir, aS ekkert annað gat legið fyrir sér en dauSi. Ilann vissi, að hann myndi bíða ósigur, — frá sjónarmiSi manna, smánarlegasta ósigur, sem orðið gat. Við ósigrinum var hann búinn. H!ann tók sér það ekki nærri, að verða undir. En hann gat ekki tára bundisí, krýning- ar-dagin sinn, yfir fávizku og syndum mannanna Hann gat ekki annað en grátið yfir því, hve eyrnd mannanna yröi alla daga mikil á þessari jörö, fyrir það, að þeir girntust það, sem er óhreint og ilt og að þjóna hatrinu og hrokanum. Mennirnir álita það' mesta ógæfu á þessari jörð,. að verða undir, tapa, bíða ósigur. Hitt er þó sanni nær, að mesta ham- ingjan er oft í því falin, að tapa, — tapa sjálfur, svo sannleik- urinn og réttlætið kornist fetinu lengra fram. Sigurvinningum er sjaldan mikill fögnuður samfara. En það er oft óumræðileg gleði samfara því, að þola þrautir og biða ósigur sjálfur í þjón- ustu sannleikans. Vitanlega njóta ekki aðrir en góðir og göf- ugir menn unaðssemda ósigursins. Og ekki nema hjartahreinir menn og þeir menn, sem mikið elska sannleikann, fá skilið til hlítar lífsspekina æðstu, að alt líf sprettur af dauða. Sá lifir mest, sem mest hefir dáið. Sá, sem gefur í dauða sjálfs sín lán og löngun, af els'ku til hugsjóna sinna, fær að rísa upp. Ekk- ert annað er lif, en það, sem hefir upprisið frá dauða. Mannkynsagan hefir ekki frá neinum atburði að skýra jafn-sorglegum, eins og ósigri konungsins, sem kom til mann- anna á pálma-sunnudag til að stofna ríki sannleikans. Sá hörmulegi atburður gerist nokkuð víða i veröldinni enn í dag. f sjálfri kristninni bíður Kristur ósigur mörgum sinnum. En þó Jesús vissi það fyrir, að hann reið ekki inn til annars en kvala og dauða, þegar hann kom til ríkis s'íns, og þó leiðin lægi beint til Golgata, þá hefir hann átt miklu meiri fögnuö i hjarta sínu, en allir aðrir konungar. Píslarsaga Jesú er raunar ekki sorgleg. Sá, sem af fúsu geði gat svo mikið liðið fyrir sann- leikann, hefir notið fagnaðar fram yfir alla menn. í sálu hans hefir verið meiri sæla, en við getum gert okkur í hugarlund, — við, sem ekki höfum borið gæfu til þess að líða svo sem neitt fyrir sannleikann. Á sál og líkama hefir Jesús sjálfsagt tekið út meiri kvalir, en nokkrir þeir aðrir, sem dvalarstað hafa átt

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.