Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1925, Page 5

Sameiningin - 01.03.1925, Page 5
67 á þessari jörð. En sælastur allra manna hefir hann og veriÖ, sökum þess, að hann gat gefiö í dauða miklu meira en ai5rir menn, af ást til sannleikans. Konungur sannleikans kemur. “BlessaÖur sé sá, sem kem- ur í nafni Drottins.” i II. Konungurinn kveður. Skírdagskvöld. Konungs-salurinn er herbergi uppi á lofti á afskektum staö. Fátt er nú orðiö eftir þess fólks, er fylgdi konunginum inn í höfuÖstaðinn á sunnudaginn. Ekki eftir aÖrir en hirðmennirn- ir tólf, og einn þeirra er svikari. Dauöinn stendur í diyrunum Hann bíÖur aÖ eins þar til konungurinn hefir kvatt hiröina. Engir menn hafa lifaÖ svo 'hugÖnæma kveÖjustund. Af þessari stundu helgast kveðjustundir allra kristinna manna. Hér hefir kærleikurinn komist lengst í þessari veröld. Nú er Jesús konungur kærleikans, — kærleikans, sem krýpur viÖ fæt- ur smælingjanna og þjónar þeim. Konungurinn þvær fætur þjóna sinna, — líka mannsins, sem hatar hann og býr yfir svik- ráðum við hann. Þetta fordæmi konungsios geymist í riki hans allar aldir. Þegnar hans læra það af honum, að þjóna öðrum, en láta ekki þjóna sér. Engu sverði er hann gyrtur, en ber líndúk við belti, þar sem aðrir 'konungar bera sverð. Eín- dúkur líknarinnar er einkennisbúningur þeirra manna, sem eru hirðmenn Krists. Með honum þvo þeir sár og þerra tár bræðra sinna. Konungurinn gengur til bor-ðs með hirömönnum sínum. Það verður síðasta máltíðin með þeim hér megin grafar. “Hjartanlega langaði mig til þess aö neyta með yður þessa páskalambs áöur en eg líð.” Það var heilög kvöldmáltíð. Aldr- ei hafði svo innilegt sálnasamband veriö með lærisveinunum og % Jesú eins og nú. B’orðræðan hans vermdi sálir þeirra eins og sólin. Aldrei hefir jafn-mikil ástúð verið í orðum nokkurs manns. Og huggunin. Hann hugsar um það eitt, að hugga þá. Huggunarorð Jesú frá skírdagskvöldinu, hefir raunar ver- ið það eina, sem mennirnir hafa haft sér til íhuggunar á skiln- aðarstundum sínum. “Eg fer burt að búa yður stað.” “í húsi föður míns eru mörg hibýli.” “Flrygð yðar mun snúast í fögn-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.