Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1925, Síða 12

Sameiningin - 01.03.1925, Síða 12
74 TILLÖG TIL HEIÐINGJATRÚBOÐS. Eins og undanfarin ár, hefir kirkjufélag vort tekið að sér að greiða $1,200 af launum trúboðans, séra S. O. Thorlaksson- ar, sem snemma á þessum vetri fór á ný til Japan með konu og börnum, og er þar nú starfandi. Síðastliðið ár voru tillög í heiðingjatrúboðsjóð hjá oss óvenjulega mikil, og stóð það í sam- bandi við það, að trúboðinn þá heimsóþti allflesta söfnuði kirkjufélagsins. Nú er að gæta þess, að hjá oss verði eklci aft- urför í að styrkja þetta málefni. Allir prestar kirkjufélagsins ættu að halda málinu vakandi með því að minnast þess iðulega í prédikunum sínum og á annan hátt að glæða áhuga fyrir þessu helga málefni kristninnar. Fólki voru er sífelt betur og betur að skiljast, að þetta málefni er grundvallað þannig á orði og anda frelsarans, að vanræksla á að sinna því, er að ganga í berhögg við skýlausan vilja og boð Drottins kristninnar. 'Þess- ari meðvitund þurfum vér sífelt að halda við hjá oss og glæða. Ræktarsöm hlýðni við boð Drottins, er beinasta leiðin til að meta þau réttilega. Eg vil biðja alla söfnuði og einstaklinga kirkjufélags vors, alla sunnudagsskóla og öll félög innan safn- aöanna, að taka að sér málið og styrkja það efnalega eftir getu nú á þessu vori og senda tillög sin til féhirðis kirkjufélagsins, hr. Finns Jónssonar, sem allra fyrst. K■ K. Ola-fson, forseti kirkjufélagsins. Feikilegur vöxtur trúboðsins, Merkileg frásaga um aulcinn árangur af kristilegu trúboðs- starfi meðal ókristinna manna í trúboðslöndunum, hefir nýlega birst í riti, er nefnist “World Missionary Atlas.” Er það gefiS út í New York borg, af stofnun til rannsóknar mannfélags- og trúmála flnstitute of Social and Religious Researchj. Oft eru tölur þurrar og fráhrindandi fyrir lesarann, en í þessu tilfelli virðast þær leiða í ljós hina hugrökku sókn þeirra, sem eru ein- manalegir útverðir sannrar menningar í afkimum veraldar og hina óþreytandi gjafmildi þeirra, sem eru bakhjarlar þeirra heimafyrir. í Bandaríkjunuim var t. d. gefið 45 sinnum meira árið 1923, en árið 1859. Rit þetta, samið undir umsjón Charles H. Eahs, sem er starfsmaður bókasafns til trúboðs rannsókna fMissionary Research LibraryJ, og prófessors Harlan P. Beach

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.