Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 14
76
innfæddra kristinna manna um aldamótin 8,288, en er nú
277,377. í þessum tölum eru a8 eins taldir altarisgestir f'Com-
municantsj, og gefa þær því einungis óljósa hugmynd um árang-
ur trúboðsins.
í Filips'eyjum, sem komu undir stjórn Bandaríkjanna
áriS 1898, voru taldir um aldamótin einungis 266 prótestantar,
nú teljast þeir 64.184. í þeim tölum er einungis átt viS inn-
fædda. í eyjum Hollendinga þar nærri, hefir veriS mjög á-
kveSin hreyfing i kristilega átt. Árið iqoo voru taldir þar ein-
ungis 36,187 kristnir menn, en nú 475,848.
Ef taldir eru allir skírðir á trúboðssvæSunum og allir, sem
njóta kristilegrar uppfræðslu, verður talan nú samtals á 116
trúboðssvæSum, 8,342,378. Fyrir 25 árum var sú tala 3,613,391.
Sunnudagsskólar eru nú á trúboðssvæðunum 50,077, og er
tala kennara og nemenda 2,535,726.
Gjafir til starfsins frá þeim, sem trúboðið hefir snúiö til
kristni, teljast nú að nema $7,469,198, og er það meir en tvöfalt
við þaS, sem gefið var 1911.
Árangurinn af trúboðsstarfinu verður auðvitaö ekki nema
að mjög litlu leyti sýndur með tölum. Það sem kristindómur-
inn færir mönnunum, verður aldrei hægt að setja í skýrslur.
En tölurnar ættu að benda á þann árangur, sem jafvel sézt á
yfirborðinu, en á bak við þær tölur er sá árangur, sem mest er
um vert — sú blessun, sem kristindómurinn hefir fært inn í lif
þeirra, sem hann aðhyllast.
— fEftir Lit. Digest). — K. K. 6.
Kristniboðinn við vinnu sína.
Eftir Arthur Judson Broum
Verkahringur kristniboSans er svo margbrotinn og yfirgrips-
mikill, að honum veröur með engu móti jafnað við starfsvið kenni-
mannsins heima fyrir. Klerkur í kristnu landi gjörir sér varla grein
fyrir því öfluga liðsinni, sem kristin menning, margra alda gömul,
veitir honum i gjörvöllu starfi hans. Samskonar hjálpargögn eru
ekki til í heiðnum löndum; trúboðinn veröur að skapa þau sjálfur.
Hann þarf að setja á stofn, ekki að eins kirkjur og söfnuði, held-
ur skóla, sjúkrahús; prentsmiðjur, kenslustofur fyrir smábörn,
barnaheimili, og aðrar greinir umbóta-starfsemi þeirrar, sem hald-
ið er uppi á vegum kristindómsins heima fyrir. Hann þarf að búa
innfædda menn undir kennimannlegt starf, koma byggingum upp,