Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1925, Page 18

Sameiningin - 01.03.1925, Page 18
80 sýni okkur mentaskóla, sem haldbetra verk hafi unniö af jafn litlum efnum. Margir mentaskólar á vegum kristniboSsins, sem senda frá sér vel mentaða menn, hafa svo litlar tekjur, aS þær hrykki varla til ljósmatar og eldsneytis í nokkrum æSri skóla hér heima fyrir. Áhrif skólanna eru ákaflega mikil. Þ!eir leiSa marga nemend- ur til Krists. Þeir burtrýma margskonar hjátrú og hleypidómum úr hugum annara nemenda, sem ekki snúast til kristni þegar í staö. Þeir veita trúboSanum aSgang aS nýjum og nýjum heimilum eöa þorpum, og kynna heiðnu fólki kristnar hugmyndir. Oft verða þeir til aS brjóta ísinn á milli trúboSans og fólks af æSri stéttunum. Þeir kristniboðsskólar skifta mörgum tugum, sem telja sonu og dætur embættismanna, aðalsmanna, og í sumum löndum jafnvel konungafólks, á meðal nemenda sinna. Sláandi sýnishorn tækifæranna, sem gefast með þessu móti, er atvik það, sem nýlega kom fyrir í Bangkok í Síam. KristniboSinn hafði reynt aS leiða aðalsmann einn til frelsarans, >en það tókst ekki; þó sendi maðurinn einkason sinn á trúboðsskólann. Einu eða tveimur árum síðar geisaði kólera þar, og drengurinn dó. Trú- boðinn talaði blíðlega við foreldrana um góða hirðinn sem stund- um tæki unglamb í arma sína, til þess að fá eldri kindurnar í fylgd með sér. Faðirinn komst mjög við; gjörði teikning eftir hugmynd þessari, og bað svo listamann að mála þar mynd af. Hann sýndi okkur málverkið: fjárhirði, góðlegan á svip, með lamb í fanginu, og álengdar kindur tvær, sem höfðu verið á leiðinni burt frá hon- um, en sneru við með löngunarsvip til að fylgja lambinu eftir. “Nú gef eg tíu þúsund líkala ('2,500 dali) til kirkjubyggingar,” sagði aðalsmaðurinn, “í minning um það, hvernig Drottinn hefir leitt mig í drengnum mínum.” Og við sögðum: Það sannast enn ,sem fyr, að “smásveinn mun gæta þeirra.” Eftir því sem Asía opnast meir og meir fyrir áhrifum yngstu menningar, og innlendum kirkjum tekur að vaxa fiskur um hrygg, því brýnni verður mentaþörfin á vegum kristniboðsins; sérstaklega fyrir þá sök, að fremstu þjóðirnar t Asíu meta nú orðið vestræna menning að verðleikum og eru farnar að koma upp sínum eigin há- skólum. En auðvitað koma ekki kristnir leiðtogar úr skólum Hindúa, Búddista eða Múhameðsmanna. Kirkjan verður að sjá sér fyrir sínum eigin mentatækjum, eða að öðrum kosti senda ung- menni sín á skóla, sem; eru andvígir kristindóminum. Þetta hafa stjórnarnefndir og starfsmenn kristniboðsins látið sér skiljast, eins og ráða má af því, að missíónsskólarnir eru nú| 39,603 talsins, og þar af eru rúmlega 2,800 miðskólar og æðri skólar, en öll nemenda- talan er 1,959,815. I'i ftofnanalista jtrúbofisins má finna hér um bil allar tegundir af skólum. Þeir eru ekki einskorðaðir við vísindalærdóm eða bók- menta, því á lista þeim eru bæði kennaraskólarar, prestaskólar, læknaskólar, iðnaðarskólar, sem veit'a tilsögn í margskonar hand- iðnum, og búnaðarskólar.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.