Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1925, Side 19

Sameiningin - 01.03.1925, Side 19
81 Samkepni ríkisskólanna, sem ætíö eru trúarsnauðir, og stund- um fjandsamlegir í garð kristindóm|S, gjörir missíónaskólunum nauösynlegt að bæta viö sig kenslutækjum og starfskröftum, svo aö betur svari þörfinni. Þetta hafa trúboSsnefndirnar reynt aö gjöra. Missíónaskólarnir, æöri og lægri, skara sumstaSar greinilega fram úr rikisskólunum, þegar verkiS er boriS saman, stig fyrir stig; en meiri framiförum þ.urfa þeir þó aS taka hvaS sem þaS kostar, eigi þeir aS skipa öndvegiS framvegis eins og aS undanförnu. Næst ber að minnast á ritstörf og bókagjörð. Þaö er skoðun mótmælenda, aö þekking á GuSs orSi sé nauSsynleg, eigi trúin aö vera haldgóS og vel grunduS. VerSur þaS þá eitt af skylduverk- um trúboðans, aö þýSa ritningarnar á alþýöumál. Oft heyrir mað- ur um það getiS, aS nærri því allar þjóSir jarSarinnar eigi nú' aS- gang aS heilagri ritningu. Sannleikur er þaS; og þaS eru kristni- boSarnir, semi þessu hafa til leiSar komiS. Biblíufélögin veita þessari deild missíónarstarfsins ómetanleg- an stuSning; þau borga prentunarkostnaS biblíunnar, og greiSa mjög mikiS fyrir útbreiSslunni meS tilstyrk umboSsmanna sinna og farandsala. Fyrir því má skoSa biblíufélögin eins og samgróinn og mjög mikilvægan hluta þessarar stórvöxnu deildar í trúboSs- starfinu. PrentuS ritningin kemur víSa þar sem ekki heyrist rödd hins lifanda vitnis. Flún færir mönnum sannleik sinn á margri hvildar- stund í einrúmi. Kraft orSa sinna veikir hún laldrei mieS orSa- stælum, né spillir honum meS rangri kenningu. Á næstliSinni öld hafa 540,000,000 eintök ritningarinnar, eSa ritningarparta, veriS prentuS á 400 tungumálum. Væri kristniboSarnir reknir burt úr Asíu allri saman, þá yrSi GuSs orS eftir þar, stór-máttugt og óeyS- anlegt, —- þögult aS verki eins og sólskinið, og meS þann feikna- kraft í sér fólginn, sem endurskapaS getur allan heiminn. Persar og Hottentottar, Kóreumenn og Síam-búar, lesa í dag á móSurmáli sínu um Krist, sem “getur til fulls frelsaS þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir GuS’’; og viS vitum, aS orS Drottins “hverfur ekki aftur til hans viS svo búiS.” Þegar búiS er aS þýSa og undirbúa, þá er eftir aS gefa út. 1 mörgum löndum var engin prentsmiSja til, þegar. kristniboSinn kom þangaS fyrst; varS hann þvi aS koma prentstæSum upp og starfrækja þau sjálfur. Hann var meS þeim fyrstu, sem sáu mik- ilvæga ráSstöfun guSlegrar forsjónar í uppgötvunum prentleturs- ins og gufupressunnar. Tvö hundruS prentsmiSjur starfrækja kristniboSsfélög mótmælenda á þessum degi, í öllum álfum heims, og eru þar út. gefnar árlega mörg hundruS miljón blaSsíSur af ritningarorSi og kristilegum ritum. Missíónar-prentstæSin í Shang- hai eru farin aS hafa geisimikil áhrif á hugsunarhátt þeirrar þjóS- ar, sem talin er þriSjungur alls mannkynsins ('Kínverjaý; í einu þeirra eru prentaSar nálega hundraS miljón blaSsíSur á ári.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.