Sameiningin - 01.03.1925, Side 20
82
Starfsemi þessi hefir fleira með höndum, heldur en biblíuþýð-
mgar. ÞaS þarf að koma út alls konar bókum og ritum. Mest-
allar bókmentir í ókristnum löndum eru óhreinar. ‘Satt er það, aS
margt er ágætt í helgiritum Hindúa, Búddamanna, eða Konfúsií-
usar; en bækur þær hafa ekkert að bjóSa nema þurran siðalærdóm,
blandaðan saman við óheyrileg kynstur af villu, barnaskap og hind-
urvitnum. Útbreiddustu bækurnar eru gegnsýrðar af heiðindóml,
ef ekki hreinum og beinum ósiðleik. Verður því trúboðinn að
skapa bókmentir í samræmi við hreinan kristindóm, en það felur í
sér bæði að þýða og frumsemja. Asíubúar eru ekki eins vanir op-
inberum ræðum, eins og vestrænar þjóðir. Það kemur sjaldan eða
aldrei fyrir að heiðnir prestar í þeim löndum flytji ræður; að hafa
áhrif á fólkið með prédikunum, er miklu erviðara þar, heldur en á
Englandi eða í Ameríku. Sérstaklega eru Kínverjar framúrskar-
andi bókavinir. Þeim var snúið til Búddatrúar með ritum, en ekki
ræðum. Með ritgjörðum, flugritum, auglýsinga-spjöldum, og nú
í síðustu tíð með fréttablöðunum, er hugsjónum venjulega gefinn
byr undir báða vængi. Tæki þessi verður kristnin að nota í miklu
stærra stíl en hún hefir gjört hingað til, eigi hún að sigrast á
Búddatrú og kenningum Konfúsíusar.
Útbreiðsla kristinna rita er einnig megin-þátturinn í kristni-
boðinu meðal Múhameðsmanna. Missíónar-prentsmiðjan í Beirut
á Sýrlandi, beitir óefað sterkari áhrifumi á Múhameðs-heiminn,
heldur en öll hin fyrirtækin til samans; því að þar er biblían prent-
uð á tungumáli, sem talað er af hundrað miljónum manna. Ritn-
ingin, skýringabækur og smárit alls konar hefja ferðir sínar frá
lítilfjörlegu húsi þar, og verða lesnar, ekki að eins á Sýrlandi og í
Palestínu, heldur í Eitlu Asíu, Afriku, á Egyptalandi; í Túnis, Al-
giers, Mórokkó á Indlandi og í aröbsku nýlendunum í Norður- og
Suður-Ameríku.
Þá er lækninga-starfsemin. Jesús sjálfur er fyrirmynd okkar
í líknarstarfinu meðal sjúkra. Því til sönnunar, að hann væri
Messías, benti hann einmitt á lækningarnar: “Blindir fá sýn, haltir
ganga, líkþráir hreinsast, daufir heyra—” Tuttugu og fjögur
kraftaverkin, af þeim þrjátíu og sex, sem sagt er frá, voru lækn-
ingar á likamlgeum kvillum; og aðrar lækningar hefir hann gjört,
tugum saman, eftir ummælum guðspjallanna, þvi að “allir, sem
höfðu sjúka, komu með þá til hans, og hann lagði hendur yfir þá
alla og læknaði þá.’’
Fyrir því er lækninga-starfsemi ómissandi þáttur í kristilegri
þjónustu meðal heiðingjanna. Við getum ekki, eins og presturinn
og Eevítinn, gengið fram hjá öllum þeim ótölulegu krossberum,
sem verða á vegi okkar þar, eða byrgt eyr.un fyrir angistar-ópi
þeirr.a.
Ókristin lönd eru þjáningalönd. Öll þau veikindi og meiðsli,
sem algeng eru í Ameríku, og önnur þaðan af verri, magnast þar