Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 24
86
Önnur leksía sömu tegundar var gefin í Shanghai í Kína. Þar
eru 20,000 kínverskar portkonur. Stúlkubörn eru seld mansali úr
foreldrahúsum til iþeirrar svívirðingar þar i landi. Kona trúboöans,
Frú Fitch, kendi mjög i brjósti um þessar aumingja ambáttir, og
stofnaði frelsunar-heimili, sem þær gát.u leitaö hælis í. Heimiliö
hefir vakiö mikla eftirtekt og ber frelsaranum kröftugt vitni. Einn
af æöstu embættismönnum landsins kom þangað einn dag meö frú
sinni, og þegar hann sá, hversu ástúðlega þessum föllnu stúlkum
var líknað þar, þá undraðist hann stórlega og sagði við konuna
sína: “Enginn myndi gjöra þetta, nema fólk Jesú.” Sú setning
lýsir ágætlega því ógnar-djúpi, sem staðfest er á milli heiðindóms
og kristni. Hún'er eins og dómsorð, sem sakfellir Konfúsíus og
róttlætir kristniboðið. Enginn nema “fólk Jesú” gjörir þessa
hluti. — ,
Kristniboðinn leitast því við að boða náðarerindið heilt og ó-
skert bæði í orði og verki, eins og Jesús gjörði sjálfur. Sítarfinu
er hagað eftir því, sem bezt hentar í hverjum: stað. Venjulega
byrjaði kristniboðinn með prédikun fagnaðarerindisins, og notaði
smárit og ritningar-útdrætti jöfnum höndum; síðan stofnaði hann
sjúkrahús og skóla, sem hjálpargögn, svo fljótt sem hann gait. En
sumstaðar, þar sem ókleift var að nota þessa aðferð, byrjaði
kristniboðinn með lækningum eöa skólastarfi. Flversu hatramlega
sem fólkið setti sig upp á móti prédikun trúarinnar, þá var það oft-
ast viljugt til að senda börn sín í skóla, eða sjúklinga sína á spítala.
Kristniboðinn gaf enga tilslökun; hann lét öllum skiljast það, aö
Kristur myndi verða boðaður bæði börnunum og sjúklingunum.
En mentaþráin og lækningaþörfin var í mörgum löndum svo mikil,
að þessar tvær greinir strafsins urðu til að gefa þar Kristi fótfestu.
Það mildaðist úr fordómum, samúð glæddist, það gáfust tækifæri
til að nálgast vini og vandamenn. Og persónuleg umgengni við
einstaklinga varð til þess á endanum, að hægt var að kalla saman
litla hópa til kristilegrar uppfræðingar í prívat húsum, og loksins
kom sú tíð, að kristniboðinn gat komið upp bænahúsi og haldið
opinberar guðsþjónustur.
G. G.
------0-------
Hálfsagðar sögur.
Eftir HenPy Van Dyke.
1. KBPPINA UTARNIR TVEIR.
Kœ'rlc-ikurinn öfundar ekki—1. Kor. 13, 4
Nicator var sigurvegarinn í kapphlaupinu mikla í Argolis-
dalnum. Hann og Cleon vinur hans og keppinautur, höfðu hlaupið