Sameiningin - 01.03.1925, Page 27
89
“Auðvitað,” sagSi Simplex, “en hvernig á þaS aS komast í
framkvæmd?”
Simplex var gamall tinsmiíSur, sem ekki lét alt á sig fá. Hann
var presbýteri, ákveSinn forlagatrúarmaður, og kryddaSi mál sitt
me8 DavíBs sálmum. Vortex var aðstoöarmaöur hans, og ’nefndi
það gjarnan í formælingum, sem hann ekki þóttist trúa á. Erfiðis-
verk hans var að bera rafmagnsblysið, eöa þá að lalla til baka á
verkstæðið og sæka verkfæri, sem gleymst höföu, meðan húsbóndi
hans sat í baðherberginu og reykti pípu sína, fyrir 2]/2 dollar um
klukkustundina.
Efnamennirnir voru sök í stríðinu mikla,” sagði Vortex, “rétt
til að auðga sig.”
“Auðvitað,” sagði Simplex “það var þegar kaupið okkar hækk-
aði. Eigingjarnir skálkar! Mættu þeir missa fótanna og vera
varpað niður í eyðileggingu. En hver á að sjá um það?”
“Við,” sagði Vortex, “alþýðan (prólctarwtið). Sitrit; okkar
og neyð veitir þessum náungum skemtiskútur sínar fyachtsj. Eng-
inn maður á rétt til annars en þess, sem hann framleiðir með eigin
höndum. Eða er ekki svo?’’
“Þannig lít eg á,” sagði Simplex, og leit á úrið sitt úr hreinu
gulli til að sjá hvort ekki væri kominn hættutími.
“En heyrðu, gamli kunningi,” hélt Vortex áfram. “Eg þarf
að fá lánaða 500 dollars. Eg þarf að fá mér Eord bíl- Þú hefir
peninga í bankanum, eða er ekki svo ?”
“Auðvitað,” sagði Simplex með ánægjusvip. “Eg hefi um
$13,000 í bankanum. Eg skal lána þér 500 með sjö prósent rentum
og taka veð í heimili þínu. Felstu á það ?”
“Heldíir það,” sagði Vortex. “Þú ert ágætur náungi,” og hann
klappaði á bak gamla mannsins.
“Jæja,” sagði Simplex, “samkvæmt ritningunni er enginn okk-
ar betri en hann á að vera, en efnamennirnir erú þó verstir allra.
Þeir eru þjófar og ræningjar, viðurstygð í augum Guðs. Við börn
erfiðisins skulum ná tökum á þeim og þeir skulu lenda í undir-
djúpunum.”
—Lauslega þýtt af K. K. Ó.
Ungmennafélög og kristileg upp-
frœðsla.
Eftir hr. /. B. Johnson.
Þegar við tökum þetta málefni, “Ungmennafélög og kristileg
uppfræðsla”, til íhugunar, er fyrst og fremst nauðsynlegt að gjöra
sér grein fyrir tilveru og tilgangi ungmennafélaganna. Þessi fé-
lög eru mynduð í sambandi við söfnuðina og er ætlast til, að sá