Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1925, Side 32

Sameiningin - 01.03.1925, Side 32
94 Hugprýði. Fyrir nokkrum árum kom frá Indlandi truboSs-prestur, og fór þess á leit viS nemendur háskólans eins á Englandi, aS ,þeir geröust kristniboSar og færu meS sér til Indlands. Hann fullvissaSi þá um þaS, aS þeir fengi aS eiga góSa daga, búa í notalegum húsurn og hafa marga þjóna. Enginn gaf sig franr. Nokkrunr manuS- um síSar kom maSur frá Afríku ofe skoraSi á þessa söniu háskóla- menn, aS taka viS starfi eins trúboSans, sem myrtur hefSi veriS suSur þar. “AS öllum líkindum kostar þaS ykkur lífiS,” sagSi kristniboSinn. Sex hraustir háskólamenn gáfu sig óSar fram og imSust til aS fara meS kristniboSanum. Þeir óttuSust ekki dauS- ann. En þeir fyrirlitu makindalíf og lítilmensku. Gestrisni. Gamalt æfintýri hljóSar á þá leiS, aS þegar vitringarnir komu austan, á leiS til Jerúsalem, þá gistu þeir eitt sinn í hrörlegum kofa hjá fátækum viSarhöggvara. Var þeim þar borinn bezti beini, eftir þvi, sem föng leyfSu. í þakklætisskyni gáfu þeir honum hljóSpípu, sem sú náttúra fylgdi, aS e'kki þurfti annaS en blása í hana og kom þá þegar, hvaS helzt sem maSur kaus sér. Þegar Vitring- arnir voru á brott, blés skógarhöggvarinn þegar í hljóSpípuna og óskaSi aS nú væri kominn góSur matur á borSiS. AS vörmu spori svignaöi borSiS undir dýrindis krásurn. Hann blés í pípuna aftur og aftur og alt varS sem hann óskaöi. Hann fékk fögur klæSi, skrautlegt hús, dýrgripi úr gulli og silfri. Alt, sem hann óskaöi, veittist honum, og hann varS brátt auSugastur allra manna þar nær- lendis. En lániS þoldi hann ekki. Hann varS drambsamur og eig- ingjarn. tlann misti alla meSlíöan meS fátækum. Hann skipaöi þjónum sínum aS líSa engurn fátækling aS koma nærri húsi hans. Á heimleiöinni ráögerSu vitringarnir aS vera aftur nætursakir hjá vini þeirra, skógarhöggvaranum. Er þeir sáu þar reisulega höll, er kofinn stóS áSur, bjuggu þeir sig sem fátæka förukarla og böröu aS dyrum. Þjónarnir skipuSu þeim burt meS harSri hendi, en þeir vildu ekki hlýSa og gerSu hávaöa rnikinn. ICom þá húsbóndinn og rak þá burt meS miklum þjósti. ÞaS sama kvöld hélt hann veizlu og haföi í boSi rnarga höfSingja. Haföi 'hann lýst yfir því, aS allir rnundu útleystir meS gjöfum og gulli. Blés hann nú í hljóSpípu sína og mælti svo fyrir, aS rik- mannlegar gjafir félli í skaut gestanna. En nú brást bogalistin; gjafirnar kornu ekki. Blés hann nú í pípuna ákaflega, en vann fyrir gýg, engin kom gjöfin. Hljóöpípan hafSi tapaö náttúru sinni. Gestirnir ruku burt reiSir og yondir. Höllin hvarf og allir skrautmunirnir. Aftur sat skógarhöggvar.in^, í hrörlegum kofa meS konu og börn sín í tötrum. — Hann hafSi á dögurn láns- ins gleymt boSinu því: “Veriö gestrisnir hver viö annan án möglunar.”

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.