Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1926, Page 8

Sameiningin - 01.03.1926, Page 8
70 sök, og dauðadómurinn er samþyktur með öllum greiddum at- kvæ'Öum. Nú þykjast þeir hafa alt ráö hans í hendi sér, því þenna dóm myndi landstjorinn staðfesta. Messías-konunginn mátti kæra um landráð. En þeir verða að bíða nokkra stund. AS líkindum hefir klukkan verið kringum þjú um nóttina þegar hér var komiö'. En ekki áræddu þeir að fara á fund landstjórans fyr en dagur rynni. Dómararnir ganga burt að taka á sig náöir litla stund, en Jesús er skilinn eftir í höndum varðmannaliðsins og þjónanna. Þeir stytta sér stundir, það sem eftir er næturinnar, með því að hæða Jesú og spotta, kvelja hann og misþyrma honum, hrækja á hann og slá hann meö hnefum og lófum. En hann laúk ekki upp munni sínum. Hann ibar raunir sínar eins og hetja. II. Hjá Pilatusi. Nú víkur sögunni til borgaralegu yfirvaldanna rómvfersku. Æöstur valdhafi þar í landi var að nafni til Heródes konungur Antipas', undirtylla keisarans í Róm. Bústaður hans er í Tíberías, en hann er staddur í Jerúsalem nú, eins og ávalt á þjóðhátíSum Gyöinga. Hieródes var refur mesti og vildi láta heita svo, að hann sýndi siðvenjum Gyðinga virðingu. Meðan hann dvelst í borginni býr hann viö milda rausn í Asmaneus-kastala, og er það gamalt höf’Singjasetur Heródesar-ættarinnar. Næstur Heródesi að virðingu er landstjórinn Pontíus Pílatus. Réði hann einn öllu í þeim héruðum. Hann sat jafnaðarlega í Sesareu4>org norður í landi, en var nú í Jerúsalem með miklu herliði, tii þess að halda öllu þar í skefjum, því jafnan var upp- reistar von á hátíðum. iMeðan Pílatus hef'st við í borginni býr hann í höll þeirri hinni nýju, sem Heródes mikli hafði reista á Síonshæð; var höll sú mikil og skrautleg. Þar höfðu gerst bæði hryðjuverk og harmsögur margar á dögum Heródesanna. Var höliin tengd með gönguml við herkastala þrjá. Var á auga- bragði hægt að ná þaðan hersveitum ef á lá. Um þetta leyti hafði Pílatus lið mikið í köstuilunum. Undir eins i dögun föstudagsmorguninn söfnuðust presta- höfðingjarnir aftur saman og fóru nú með Jesú bundinn upp til hailarinnar. í fyrsta sinn á æfinni stígur Jesús fæti í konungs- höli. Þar á hann þeim manni að mæta, sem illræmdur er hjá öllum lýðum fyrir grimd og ódrengskap. Nafnið “Pílatus” þýðir, að því er fróðir menn s'egja, “atgeir”, og bar hann nafnið með rentu. í höllinni inni var salur einn mikill og var dómþingið venju-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.