Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1926, Side 10

Sameiningin - 01.03.1926, Side 10
72 göfgi, að hér er um glæpamál að ræÖa, og glæp, sem dauðahegning Hggur viÖ. YÖur er líunnugt, að vor lög ná þar nú ekki lengur til án yöar samþykkis.” “Hvaða kæru færið þér þá gegn honum?” spyr Pílatus. Lævislega rangfærir nú Kaífas yfirlýsingu þá, er Jesús hafði gert um Messíasardæmi sitt og Guðssonerni. Snýr Kaífas 'henni á þá leið, aö úr henni verður pólitísk sök og landráö. “Bandinginn hefir verið fundinn sekur um þaö, að afvega- leiða alþýðu,” segir Kaífas. “Hvernig þá ?” spyr Pílatus. “Á tvennsbonar 'hátt,” svarar Kaífas. “Bæöi með þvi að banna að gja'lda keisaranum skatt og með því að segjast sjálfur vera konungur Gyöinga.” Þá stendur Pílatus upp' og gengur inn í höllina. Hann gefur hermanni ibendingu um að koma með Jesú þangað á eftir sér. Þeg- ar þeir eru orðnir þar tveir einir, segir Pílatus við Jesúm: “Ert þú kon.ungur Gyöinga? Er það satt aö þú krefjist ríkis hér í landi?” Eflaust hefir Pílatus búist við, að Jesús neitaði afdrátt- arlaust, en svar Jesú varð. á aðra leið en Pílatus' átti von á. “í þeim ski'lningi, sem þú leggur i þaö orö, Pílatus, er eg ekki konungur,” sivarar Jesús. “En í öðrum skilningi er eg konungur. En mitt ríki er ekki af þessum heimi.” ”Ertú þá konungur í einhverri óvenjulegri merkingu?” “Þú mælir rétt,” svarar Jesús. “Já, eg er konungur. Eg er fæddur í þenna heim til þess að vera konungur. Eg er kominn í heiminn til þess að stofna hér ríki sannleikans. Allir þeir, sem sækjast eftir sannleikanum og elska hann, eru þegnar ríkis míns.” “Heyr á endemi,” hugsar Pilatus með sér. “Hvað er sann- leikur ? Hvernig þessir spekingar tala! Þeir um það. Þeir geta þjarkað um það grisku spekingarnir og Gyðinga lærimeistararnir. Þaö kemur mér ekki við.” Pilatus gengur nú aftur út á steinpallinn og komiö er með Jfesú á eftir honum. Pílatus tilkynnir það þegar, aö' hann finni enga sök hjá þessum manni. En þá kveða við hin mestu óhljóð. Óvinir Jesú. æpa hver í kapp við annan: “Hann hefir afvegaleitt a^Iþýðuna og æst hana móti stiórninni al'lar götur norðan frá Galíleu og hingað til Jerúsalem.” Þegar Pilatus heyrir þá segja að Jesú sé kominn frá Galíleu, dettur honum ráö í hug og verður þvi feginn. Heródes Antipas er staddur í borginni. “Nú skal eg vinna tvent i einu,” hugsar Píla- tus með sér, “losa mig viö þenna vanda og ná mér niðri á Heródesi með því að koma skömminni á hann.” Hann leggur því þann

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.