Fréttablaðið - 24.03.2011, Page 4

Fréttablaðið - 24.03.2011, Page 4
24. mars 2011 FIMMTUDAGUR4 GENGIÐ 23.03.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 216,078 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,65 114,19 185,16 186,06 161,39 162,29 21,639 21,765 20,434 20,554 18,053 18,159 1,4038 1,4120 180,74 181,82 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is A T A R N A Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Glæsilegar vörur nú á Tækifærisverði. Komdu í heimsókn og gerðu góð kaup. ALÞINGI Staða Jóhönnu Sigurðardóttur er neyðarleg og grafalvarleg, nú þegar kæru- nefnd jafnréttismála hefur úrskurðað að hún hafi sem forsætisráðherra brotið jafnréttis- lög við ráðningu skrifstofustjóra í forsætis- ráðuneytinu. Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, Sjálfstæðisflokki, á Alþingi í gær. Þorgerður sagði að yfirlýsing forsætisráðu- neytisins vegna málsins væri „hrokafull og aumingjaleg“; „ekkert annað en húmbúkk og yfirklór.“ Lítið væri gert úr kærandanum í greinargerðinni. Þorgerður sagði að enginn þingmaður hefði verið stóryrtari vegna brota á jafnréttis lögum á árum áður en Jóhanna Sigurðardóttir og vitnaði til þess að hún hefði krafist afsagnar ráðherra þegar jafnréttislög voru brotin við skipan í embætti hæstaréttardómara. Þorgerður spurði hvernig Samfylking og VG ætluðu nú að standa jafnréttisvaktina að fenginni þessari niðurstöðu. Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingu, sagðist þeirrar skoðunar að málið væri graf- alvarlegt og úrskurður kærunefndar væri vel rökstuddur og afdráttarlaus Sigríður Ingi- björg Ingadóttir, Samfylkingu, sagði að þegar svo alvarlegur úrskurður lægi fyrir væri eðli- legt að forsætisráðherra veitti Alþingi skýr- ingar. - pg Stjórnarandstæðingar segja yfirlýsingu Jóhönnu vegna brota á jafnréttislögum „húmbúkk og yfirklór“: Staða Jóhönnu sögð neyðarleg og alvarleg JAFNRÉTTI Sama dag og settar voru siðareglur um faglegar mannaráðningar féll úrskurður um brot forsætisráðherra á jafn- réttislögum, sagði Þorgerður Katrín á Alþingi í gær. JAFNRÉTTISMÁL Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra braut jafn- réttislög þegar hún gekk framhjá kvenkyns umsækjanda við ráðn- ingu í stöðu skrifstofustjóra í ráðuneytinu samkvæmt úrskurði kærunefndar jafnréttismála. Jóhanna skipaði Arnar Þór Más- son í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stjórnsýslu- og sam- félagsþróunar í ráðuneytinu í júní síðastliðnum. Anna Kristín Ólafs- dóttir, sem einnig sótti um stöð- una, kærði niðurstöðuna til kæru- nefndar jafnréttismála. Í úrskurði nefndarinnar segir að forsætisráðuneytið hafi ekki geta sýnt fram á að aðrar ástæð- ur en kynferði hafi legið að baki því að Arnar hafi fengið starfið en ekki Anna. Nefndin telur Arnar og Önnu í það minnsta jafn hæf til að gegna stöðunni, og gefur lítið fyrir ráðningarferli ráðuneytisins. Í niðurstöðum úrskurðar- nefndar innar segir að menntun Önnu hafi hentað betur en mennt- un Arnars, og að starfsreynsla þeirra hljóti að teljast jöfn. Þá kemur þar fram að Anna hafi vinninginn þegar komi að leið- togahæfileikum, enda hafi hún haft mannaforráð í fyrri störfum, ólíkt Arnari. Ráðuneytið fékk sjálfstætt starfandi sérfræðing til að koma að ráðningarferlinu. Ráðgjafinn tók viðtöl við þá umsækjendur sem taldir voru hæfastir, og gaf þeim stig í mismunandi flokkum eftir svörum þeirra í viðtölunum. Í úrskurði úrskurðarnefndar- innar segir að ekki liggi fyrir greinargóðar upplýsingar um svör umsækjenda, né hvernig svörin hafi verið metin. Því verði niður- staða nefndarinnar ekki byggð á mati ráðgjafans á frammistöðu umsækjenda í viðtölum. Í yfirlýsingu sem forsætisráðu- neytið sendi frá sér í gær segir að faglega hafi verið staðið að ráðn- ingunni. Til stendur að boða Önnu til fundar í ráðuneytinu til að fara yfir málið. „Það var samhljóma niðurstaða embættismanna og ráðgjafa, að sá sem skipaður var væri hæfastur til þess að gegna embættinu og var sú niðurstaða kynnt fyrir ráð- herra,“ segir í yfirlýsingu ráðu- neytisins. „Einu afskipti ráðherra við undir búning skipunar var að leggja áherslu á að hæfasti umsækjandinn væri skipaður og sérstaklega væri að því gætt að jafnréttislög væru í alla staði virt,“ segir þar enn fremur. Samkvæmt yfirlýsingu ráðu- neytisins var Anna fimmta í röð- inni í hæfnismati sem gert var áður en skipað var í stöðuna en Arnar var í fyrsta sæti. Jóhanna varð ekki við óskum Fréttablaðsins um að veita við- tal vegna málsins í gær. Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 sagðist hún vera með hreina samvisku, og að henni þætti miður hefðu jafnréttis lög verið brotin. Þá benti Jóhanna á að hún hefði eflaust hlotið mikla gagnrýni hefði hún ráðið Önnu. Hún hefði verið í fimmta sæti yfir umsækjendur, væri meðlimur í Samfylkingunni og fyrrverandi aðstoðarmaður Þórunnar Sveinbjarnardóttur í ráðherratíð Þórunnar í umhverfis- ráðuneytinu. brjann@frettabladid.is Gengið framhjá hæfri konu Kærunefnd jafnréttismála telur að forsætisráðherra hafi brotið gegn jafnréttislögum við skipan í stöðu skrifstofustjóra. Ráðherra segist með hreina samvisku og segir kalrkyns umsækjanda hafa verið hæfari. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kallaði eftir afsögn Björns Bjarna- sonar, þáverandi dómsmálaráðherra, árið 2004 eftir að kærunefnd jafn- réttismála úrskurðaði að ráðherrann hefði brotið gegn jafnréttislögum með skipan hæstaréttardómara. „Hjá öðrum lýðræðisþjóðum hefði ráðherra sem brýtur svo gróflega lög og reglur verið látinn fjúka. En hér á landi er allt leyfilegt hjá ráðherrunum og þeir komast upp með allt,“ sagði Jóhanna á þingi árið 2004. „Hæstvirtur ráðhera gerir ekkert með að hann er ekki einasta sekur um brot á jafnréttislögum heldur gengur hann á svig við jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar og jafnræðisreglur stjórnsýslulaga,“ sagði hún jafnframt. „Hver er pólitísk ábyrgð ráðherrans? Er henni fullnægt að mati ráðherra með því að brotaþola verði dæmdar skaðabætur eða á ráðherra að segja af sér,“ sagði Jóhanna á þingi árið 2004. Kallaði eftir afsögn ráðherra árið 2004 Arndís Ósk Jónsdóttir mannauðs- ráðgjafi, sem kom að ráðningunni í starf skrifstofustjóra forsætisráðu- neytisins, gagnrýnir vinnubrögð kærunefndar um jafnréttismál harðlega í greinargerð sem hún sendi ráðuneytinu í gær. Hún segir ráðningarferlið hafa verið faglegt. „Þar til að kærunefnd jafnréttis- mála getur sýnt fram á hvaða fræðilegi bakgrunnur stendur að baki mati nefndarinnar má líta svo á að skilaboð hennar séu þau að á Íslandi eigi ekki að vinna faglega að undirbúningi ráðninga hjá hinu opinbera,“ segir í greinargerðinni. Faglega staðið að ráðningu Arnars VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 14° 16° 15° 14° 18° 19° 9° 9° 20° 16° 18° 6° 29° 10° 18° 13° 2° Á MORGUN Hæglætisveður. HELGARVEÐRIÐ 5-10 m/s. 3 3 6 4 -2 -3 -3 -1 -1 -1 0 7 8 6 4 3 6 5 7 4 13 7 2 2 2 5 6 7 8 4 44 RÓLEGT VEÐUR Vorið mun loksins láta á sér kræla næstu daga og verður líklega víða orðið frostlaust á láglendi á morgun. Lítur út fyrir að hitinn um helgina verði á bilinu 3-10°C, mildast syðst. Veður verður almennt nokkuð þurrt og bjart og vindur hægur. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður RÁÐHERRA BROTLEGUR Jóhanna Sigurðardóttir kallaði árið 2004 eftir afsögn þáverandi dómsmálaráðherra eftir að kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði að hann hefði brotið gegn jafnréttislögum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JAFNRÉTTISMÁL „Mér finnst þessi niðurstaða vera áfellisdómur yfir stjórnsýslu forsætisráðuneytis ins,“ segir Anna Kristín Ólafsdóttir, sem kærði ráðn- ingu forsætis- ráðuneytisins til kærunefndar jafnréttismála. „Kærunefnd- in tekur undir öll þau atriði sem ég setti fram í minni kæru og setur stórt spurning- armerki við málsmeðferðina og það mat sem var unnið á umsækj- endum,“ segir Anna. Hún segist ekki hafa ákveðið hvort hún ætli að krefja forsætisráðuneytið bóta en segir það vissulega möguleika. „Mér fyndist það forkastanlegt ef ráðherra ætlaði sér að hundsa úrskurð kærunefndarinnar,“ segir Anna. „Ég tel að sá hroki sem kemur fram í yfirlýsingu forsætis- ráðuneytisins dæmi sig sjálfur.“ Anna segir það ánægjulegt að nefndin hafi úrskurðað sér í hag, það skipti miklu fyrir konur jafnt sem karla að úrræði á borð við þessi séu virk. - bj Kærði á jafnréttisforsendum: Áfellisdómur yfir ráðuneyti ANNA KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR FJÖLMIÐLAR DV ætlar ekki að fall- ast á kröfu sýslumanns um að blaðið skili gögnum um dóttur- félag Landsbankans. Reynir Traustason, ritstjóri blaðsins, segir um svívirðilega aðför að heimildarmönnum að ræða. Sýslumaðurinn samþykkti á þriðjudag lögbann á umfjöllun DV um fjárfestingarfélagið Horn, dótturfélag Landsbankans. Sýslumaður telur gögn sem blað- ið hefur um félagið trúnaðargögn sem beri að skila. - kdk Lögbannskrafa gegn DV: Láta ekki gögn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.